Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 07:02 Tómas Bent Magnússon fékk þungt högg og kinnbeinsbrotnaði í leik Hearts á móti Kilmarnock. Getty/Steve Welsh/ Derek McInnes knattspyrnustjóri Hearts er sannfærður um að Heart of Midlothian muni „eiga sérstakan endi á tímabilinu“. Hann sagði einnig frá því að Eyjamaðurinn í liðinu ætli ekki að láta kinnbeinsbrot halda sér frá vellinum.
1-0 tap Hearts gegn Kilmarnock um síðustu helgi vakti spurningar um getu liðsins, sem hefur lengi verið í forystu, til að vinna skosku úrvalsdeildina þrátt fyrir að vera enn tveimur stigum á undan Celtic á toppnum. „Ég vil ekki tala um eftirsjá því það er eins og það muni enda með vonbrigðum. Ég hef fulla trú á því að við munum eiga sérstakan endi á tímabilinu og ég er algjörlega staðráðinn í því. Ég sé það fyrir mér, ég held að við getum það, ég held að við getum verið virkilega öflugir alla leið,“ sagði McInnes. „Ég vil að leikmennirnir spili með sjálfstraust og hugsi ekki um það, heldur reyni bara að nýta tækifærið sem við höfum.“ Tomas Magnusson's late strike wins the Edinburgh derby for Hearts.The Scottish Premiership leaders extend their lead to six points.#BBCFootball pic.twitter.com/eO1sVWEjHk— BBC Sport Scotland (@BBCSportScot) February 10, 2026 McInnes staðfesti að Tómas Bent Magnússon gæti verið klár í næstu viku til að spila með grímu þrátt fyrir að hafa kinnbeinsbrotnað gegn Kilmarnock. Tómas hefur látið til sín taka á tímabilinu og er þekktur fyrir allt annað en að gera eitthvað eftir inni á vellinum. Margir héldu að kinnbeinsbrotið myndi jafnvel þýða að hann myndi missa af lokakafla mótsins en svo verður sem betur fer ekki. Fyrrverandi stjóri Kilmarnock viðurkennir að það sé „lítið svigrúm fyrir mistök“ hjá neinu af liðunum á toppnum en segir að Hearts sé „nákvæmlega þar sem við viljum vera“. Hearts hefur þrjá sigra og þrjú töp úr síðustu sex leikjum sínum í úrvalsdeildinni – árangur sem hefur minnkað forystu þeirra í tvö stig á Celtic, en Rangers er stigi þar á eftir. 🗣️ "I fully believe we are going to have a special end to the season."🗣️ "Not a lot of room for error for any team."🗣️ "We are the underdog."Hearts head coach Derek McInnes on the title race, with Celtic two points behind, and Rangers a further point back in third ⤵️ pic.twitter.com/a3jnsCNstN— Sky Sports Scotland (@ScotlandSky) March 19, 2026 „Þegar maður horfir á liðin í kringum okkur, af síðustu fimm leikjum höfum við unnið þrjá, Celtic hefur unnið þrjá, Motherwell hefur unnið þrjá, Rangers hefur unnið tvo – svo ekkert lið er í raun að taka flugið,“ sagði hann. „Þetta sýnir erfiðleikastigið. Vonandi getum við verið liðið sem tekur flugið.“ „Ég er bara feginn að við séum með í baráttunni, satt best að segja. Ég gæti ekki hugsað mér neitt verra en að vera um miðja deild núna og bara sitja og horfa á þessa baráttu og óska þess að það værum við. Við erum beint í miðri baráttunni og við erum nákvæmlega þar sem við viljum vera,“ sagði McInnes.
Skoski boltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira