Ter Stegen fékk ekki að kjósa Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 09:31 Marc-André ter Stegen reyndi að kjósa en hafði ekki erindi sem erfiði. Skjáskot/@esport3 Börsungar kusu sér forseta í gær en þýski markvörðurinn Marc-André ter Stegen fékk hins vegar ekki að taka þátt í þeirri kosningu.
Ter Stegen var í hópi þeirra þúsunda sem mættu á Camp Nou í gær til þess að kjósa á milli þeirra Joan Laporta, sitjandi forseta, og Victors Font. Það varð hins vegar ansi vandræðaleg stund, eins og sjá má hér að neðan, þegar röðin kom að Þjóðverjanum því í ljós kom að hann mátti ekki kjósa. 🚨 At the Barcelona presidential elections, Marc-André Ter Stegen had to leave without voting after discovering his name wasn’t on the electoral roll. 🗳️❌😅(Source: @esport3) pic.twitter.com/rCkeGc6nh7— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) March 16, 2026 Allir leikmenn sem ganga til liðs við Barcelona verða sjálfkrafa meðlimir í spænska félaginu, svokallaðir „socios“, en þurfa sjálfir að sjá til þess að aðild þeirra haldist gild. Samkvæmt heimildum ESPN hefur Ter Stegen láðst að uppfæra aðild sína og þess vegna gat hann ekki kosið. Ter Stegen, sem er 33 ára, hefur verið hjá Barcelona frá árinu 2014 en er að láni hjá Girona eftir að hafa farið þangað í janúar. Svo fór í kjörinu að Laporta var endurkjörinn forseti en hann hlaut 68% atkvæða og Font nærri 30%. Aðrir atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir. Hinn 63 ára gamli Laporta hefur verið forseti síðustu fimm ár en var einnig áður forseti á árunum 2003-10. Hann sagði kjörið í gær gera Barcelona óstöðvandi: „Enginn mun geta stöðvað okkur. Það eru spennandi ár fram undan. Þetta verða bestu ár ævi okkar,“ sagði Laporta.
Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira