Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 21:20 Manchester United hefur unnið sjö af níu leikjum sínum síðan Michael Carrick var ráðinn þjálfari liðsins. getty/Stu Forster Öfugt við ýmsa fyrrverandi leikmenn Manchester United vill Wayne Rooney að Michael Carrick verði ráðinn þjálfari liðsins til frambúðar. Vel hefur gengið hjá United eftir að Carrick tók við liðinu fyrir tveimur mánuðum.
Í dag vann United Aston Villa á Old Trafford, 3-1, en þetta var sjöundi sigur liðsins í níu leikjum undir stjórn Carricks. Rooney hefur hrifist af störfum Carricks síðan hann tók við United og vill að stjórnendur félagsins ráði hann til frambúðar. „Hann ætti hundrað prósent að fá starfið. Ég vissi að þetta myndi gerast með Michael Carrick. Ég þekki hann mjög vel, hans karakter og persónuleika,“ sagði Rooney á BBC. „Það þurfti yfirvegaðan einstakling en einhvern sem þekkir félagið. Leikmennirnir þurftu smá umhyggju og hann hefur sýnt þeim hana. Við höfum séð liðið spila betur, liðsheildin er þéttari og þeir virka mjög sterkir. Af hverju að breyta því?“ Eftir leikinn gegn Villa sagðist Carrick ekkert velta framtíðinni fyrir sér. Hann hugsaði bara um að undirbúa United-liðið sem best fyrir leikinn gegn Bournemouth á föstudaginn kemur. Í stuttu viðtali við Sky Sports á dögunum sagði Sir Jim Ratcliffe, einn eigenda United, að hann væri hæstánægður með Carrick. Hann vildi þó ekkert segja um hvort hann yrði ráðinn sem þjálfari United eftir tímabilið. United er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 54 stig þegar liðið á átta leiki eftir.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira