„Allir hjá Manchester United elska hann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 12:02 Michael Carrick fær nægan tíma til að stilla Manchester United liðið af á milli leikja enda er liðið dottið út úr öllum öðrum keppnum en ensku úrvalsdeildinni. Getty/George Wood Michael Owen trúir því ekki að fólk sé að efast um hvort Michael Carrick eigi að verða fastráðinn knattspyrnustjóri Manchester United.
Carrick, sem spilaði 464 leiki fyrir United, var ráðinn bráðabirgðastjóri eftir að Ruben Amorim var rekinn í janúar. Hinn 44 ára gamli stjóri hefur unnið sex af átta leikjum sínum við stjórnvölinn og félagið hefur farið úr sjötta sæti í það þriðja í ensku úrvalsdeildinni. Owen, fyrrverandi framherji Manchester United og enska landsliðsins, sem lék með Carrick á Old Trafford á árunum 2009 til 2012, telur að hann hafi „endurheimt ró og yfirvegun hjá félaginu“. „Ég trúi því ekki að fólk sé að efast um hvort hann eigi að fá starfið,“ sagði Owen í nýjasta þætti hlaðvarps breska ríkisútvarpsins, The Wayne Rooney Show. „Manchester United hefur beðið í um tólf ár. Það hefur reynt þrautreynda stjóra og goðsagnir, allt síðan Sir Alex [Ferguson] hætti. Þegar leikmenn loksins byrja að spila vel og ná í úrslit, auk þess sem stuðningsmennirnir eru með þeim í liði, ertu að segja mér að ef liðið nær þriðja sæti í lok tímabilsins muni þeir segja „takk, en nei takk“. Hvernig er það hægt?“ sagði Owen. Wayne Rooney, sem hefur hrósað Carrick og áður sagt að bráðabirgðastjórinn hafi gefið stuðningsmönnum United smjörþefinn af Ferguson-tímabilinu, er sammála Owen. „Allir hjá Manchester United elska hann Michael Carrick og þeir eru bara hræddir um að þetta gangi ekki upp. Hann hefur staðið sig ótrúlega vel,“ sagði Rooney. Félagið er sagt vera að skoða aðra kandídata, ásamt Carrick, til að taka við sem fastráðinn knattspyrnustjóri í sumar.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira