Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Sindri Sverrisson skrifar 10. mars 2026 10:00 Heimir Hallgrímsson fylgist hér með æfingu írska kvennalandsliðsins í síðasta mánuði. Hann hefur að ýmsu að hyggja fyrir HM-umspilið í lok mars. Getty/Stephen McCarthy Andy Townsend, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Írlands, virðist ánægður með Heimi Hallgrímsson sem landsliðsþjálfari og vongóður um að Heimir stýri Írum inn á HM í fótbolta í lok þessa mánaðar.
Írar hafa ekki verið með á HM síðan árið 2002 en eftir leikina ótrúlegu gegn Portúgal og Ungverjalandi í nóvember, sem Írland vann, lifir vonin um sæti á HM í sumar. Leiðin er að vísu enn afar erfið því Írar þurfa að vinna Tékkland á útivelli 26. mars og svo heimaleik 31. mars við sigurliðið úr leik Danmerkur og Norður-Makedóníu. Townsend segir Heimi hafa sýnt að hann geti lagt upp leiki með fjölbreyttari hætti en forveri hans í starfi og vill að hann taki sér Arsenal til fyrirmyndar, með því að vera tilbúinn að gera hvað sem er til þess að vinna leiki. Það þurfi ekki að vera neitt fallegt við sigrana ef bara Írland endar svo á HM. „Fólk hefur verið að gagnrýna Arsenal núna sem er algjört kjaftæði. Menn verða að gera allt sem þeir geta til að vinna, til að komast yfir línuna. Og ég tel að strákarnir okkar geti það. Auðvitað reyna þeir að spila, reyna að halda boltanum og gera þessa hluti sem eru mikilvægir. En ef að það eru bara tíu mínútur eftir og það þarf að dæla boltanum inn í teig þá erum við með menn sem geta flogið á eftir honum og látið eitthvað gerast,“ sagði Townsend samkvæmt Irish Mirror, og var greinilega hugsað til sigurmarks Troy Parrott í nóvember. „Ég er ánægður með að írska liðið virðist ráða við að breyta til í leikjum. Við erum ekki bara með eitt plan eins og var svo oft undir stjórn Stephen Kenny. Mér finnst nýi þjálfarinn ekki einskorða sig við eina leikaðferð. Ég tel að hann muni gera hvað sem til þarf til þess að við getum nýtt okkar styrkleika og látið þá bitna á mótherjum okkar,“ sagði Townsend. Townsend var fyrirliði Írlands þegar liðið spilaði á HM 1994 sem einmitt fór fram í Bandaríkjunum, líkt og stór hluti mótsins í sumar. Komist Heimir og hans menn á HM munu þeir hins vegar spila sinn riðil, A-riðil, í Mexíkó með heimamönnum, Suður-Afríku og Suður-Kóreu.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira