Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 14:04 Joan Laporta er staðráðinn í að halda áfram sem forseti Barcelona. Getty/Javier Borrego Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur svarað fyrir sig af krafti eftir skotin sem hann fékk frá Xavi í blaðaviðtali um helgina.
Slagurinn um forsetastólinn hjá Barcelona er að ná hámarki en kosið verður um næstu helgi á milli Laporta og Victor Font. Xavi hefur lýst yfir stuðningi við Font en Laporta telur að Xavi sé að láta nota sig. Xavi var þjálfari Börsunga árin 2021-24, í þessari seinni forsetatíð Laporta, og áður leikmaður liðsins um langt árabil og þar af lengi vel í fyrri forsetatíð Laporta. Xavi gagnrýndi í fyrrnefndu viðtali Laporta fyrir að hafa sagt nei við því að fá Lionel Messi aftur til Barcelona, og sagði hann hafa logið til um ástæður þess að það gekk ekki eftir. Þá sagði Xavi að Laporta væri handbendi fyrrverandi mágs síns, Alejandro Echevarría, og að Laporta hefði logið til um aðdraganda þess að Xavi hætti sem þjálfari Barcelona fyrir tveimur árum. Þá kenndi Xavi Laporta um að Martin Zubimendi, sem nú er á toppnum með Arsenal á öllum vígstöðvum, skyldi ekki koma til félagsins. Laporta hefur nú svarað fyrir sig. „Ég varð undrandi og sár. Þegar ég las ummæli Xavi hugsaði ég til Flick [Hansi Flick, núverandi þjálfara Barcelona]. Það er erfitt að vera forseti Barcelona og maður verður að taka erfiðar ákvarðanir. Ég gerði það sem til þurfti,“ sagði Laporta samkvæmt Mundo Deportivo. „Með Xavi þá sá ég að við værum að fara að tapa en með Flick þá sé ég að við munum vinna. Ég skil að hann sé sár. Á meðan Xavi var að tapa þá eru sömu leikmenn núna að vinna, hjá Flick,“ sagði Laporta. Varðandi mögulega endurkomu Lionels Messi árið 2023 þá sagði Laporta að Jorge Messi, pabbi Lionels, hefði heimsótt hann og sagt að pressan yrði of mikil á Messi sem svo endaði hjá Inter Milan í Bandaríkjunum. Þetta stangast á við það sem Xavi fullyrti um að Laporta hefði tekið sína ákvörðun og ekki viljað koma af stað launastríði. Laporta hélt svo áfram og sakaði Xavi um að hafa ekki sýnt nægilega mikinn metnað og að hafa ranglega haldið því fram að leikmannahópur Barcelona væri ekki samkeppnishæfur. Sami hópur og núna væri á toppi spænsku deildarinnar undir stjórn Flick.
Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira