Segir einn mann hafa stöðvað heimkomu Messi Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 09:01 Xavi og Lionel Messi hefðu getað sameinað krafta sína að nýju árið 2023, að sögn Xavis. Getty/Xavier Bonilla Spánverjinn Xavi, sem þjálfaði Barcelona 2021-24 eftir að hafa spilað með liðinu í sautján ár, segir að það hafi nánast verið frágengið að Lionel Messi kæmi aftur til félagsins árið 2023.
Xavi greindi frá þessu í viðtali við spænska blaðið La Vanguardia, í aðdraganda kosninganna um forseta Barcelona sem fram fara 15. mars. Xavi segir það núverandi forseta félagsins, Joan Laporta, hafa komið í veg fyrir að Messi sneri aftur sem leikmaður hjá Barcelona fyrir þremur árum. Laporta sækist eftir endurkjöri um næstu helgi og berst við tæknifrumkvöðulinn Víctor Font um forsetastólinn. Xavi og Messi léku um árabil saman í gullaldarliði Barcelona og eru enn í góðu sambandi, og það hefði vel getað farið svo að Xavi fengi að stýra Messi sem leikmanni. „Ég tala enn við hann og við erum í góðu sambandi. Við höfum rætt um komandi kosningar en það eru einkasamtöl. Ég vil helst ekki segja meira þó að ég ímyndi mér að þið vitið hvað honum finnst,“ sagði Xavi og talið snerist svo að endurkomunni sem aldrei varð, þegar Messi fór frá PSG árið 2023 en endaði þá hjá Inter Miami. „Laporta er ekki að segja satt. Messi var mjög nálægt því að snúa aftur þegar ég var þjálfari. Það var í raun frágengið í janúar 2023,“ sagði Xavi sem hafði samband við Messi eftir að Argentínumenn unnu HM í desember 2022, til að ræða endurkomuna. „Við töluðum saman fram í mars. Ég sagði honum að þegar hann segði til þá myndi ég ræða við forsetann. Spænska deildin hafði gefið grænt ljós. En Laporta bakkaði út úr þessu. Hann sagði mér, orðrétt, að ef Messi kæmi aftur þá myndi það þýða stríð og að hann gæti ekki leyft það,“ sagði Xavi og átti þá við að það yrði launastríð hjá spænska félaginu sem svo sannarlega hefur glímt við mikla fjárhagserfiðleika. Endurkoma Messi hafi átt að verða „hinsti dansinn“ líkt og hjá Michael Jordan. Allt hafi verið klárt en Laporta stöðvað það. Xavi segist ekki sjá fyrir sér að snúa nokkru sinni aftur til Barcelona. „Kafla mínum þar, bæði sem leikmaður og sem þjálfari, er lokið.“
Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira