„Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2026 07:01 Arne Slot tekur á móti Rio Ngumoha eftir að hann tók hann af velli í bikarsigri Liverpool. Getty/Robbie Jay Barrat Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool hrósaði Rio Ngumoha eftir að unglingurinn stóð sig vel í byrjunarliðshlutverki í 3-1 sigri Liverpool á Wolves í enska bikarnum.
Þessi sautján ára gamli leikmaður spilaði 69 mínútur í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar þar sem hann olli stöðugum vandræðum fyrir vörn Wolves. Þrátt fyrir að hafa ekki skorað mun frammistaða framherjans aðeins ýta undir þær kröfur að hann fái meiri og reglulegri spiltíma, sérstaklega þar sem Cody Gakpo og Mohamed Salah hafa átt í erfiðleikum með leikformið á þessu tímabili. Þetta var aðeins fjórði byrjunarliðsleikur Ngumoha og hans átjándi leikur á tímabilinu í öllum keppnum. Sautján ára og getur haft áhrif Þegar Slot ræddi um frammistöðu Ngumoha sagði hann: „Sérstakt, því ef þú ert sautján ára og getur haft áhrif á leik tveggja úrvalsdeildarliða, þá segir það þér hversu góður leikmaður hann er,“ sagði Arne Slot við BBC Sport. „En það er undir honum komið að sýna þetta í hvert skipti. Það ætti að gefa honum mikið sjálfstraust að sýna þetta í útileik,“ sagði Slot. Mörk í seinni hálfleik frá Andy Robertson, Salah og Curtis Jones tryggðu Liverpool sigurinn áður en Hwang Hee-Chan skoraði sárabótarmark Wolves seint í leiknum. Þetta er kærkomin upplyfting fyrir lið Slot, sem ferðast til Istanbúl til að mæta Galatasaray í fyrri leik sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar á þriðjudag. Sköpuðum meira en í síðasta leik „Við sköpuðum meira en í síðasta leik og það er ástæðan fyrir því að við gátum unnið í dag,“ sagði Slot. „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi. Fyrir þremur dögum leið mér allt öðruvísi en núna. Gott er að vera kominn í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Eftir þrjá, fjóra daga er annar stórleikur í Istanbúl,“ sagði Slot. Liverpool varð þarna fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar, sem fara fram fyrstu helgina í apríl. Þá vill enginn spila á móti okkur „Við erum að reyna að berjast á öllum vígstöðvum,“ sagði bakvörðurinn Andrew Robertson sem bæði skoraði mark og lagði upp í leiknum. „Við erum enn í tveimur bikarkeppnum. Ef við spilum eins og við gerðum í kvöld, þá vill enginn spila á móti okkur. Við verðum að byrja að sýna þennan stöðugleika. Þetta er eitt skref áfram og tvö aftur á bak,“ sagði Robertson.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira