Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2026 17:18 Cristiano Ronaldo fær að jafna sig af meiðslum sínum í Madrid, hjá sínum sjúkraþjálfara. Getty/Yasser Bakhsh Cristiano Ronaldo er farinn frá Sádi-Arabíu til Madridar á Spáni, vegna meiðslanna sem hann glímir nú við.
Portúgalinn er þar með sloppinn í bili úr þeirri ótryggu stöðu sem er í Mið-Austurlöndum en ástæðan er meiðslin sem hann varð fyrir í leik með Al Nassr um síðustu helgi. Ronaldo sást haltra af velli í 3-1 sigrinum gegn Al Fayha, vegna meiðsla í hægra læri, og nú hefur verið ákveðið að hann hljóti meðferð við meiðslunum í Madrid. Þetta staðfesti þjálfari Al Nassr, Jorge Jesus, í dag. „Cristiano meiddist í vöðva í síðasta leik. Eftir skoðun var ljóst að meiðslin væru verri en talið var. Hann þarf hvíld og endurhæfingu. Cristiano ferðast því til Spánar í meðferð, líkt og aðrir leikmenn sem eru meiddir,“ sagði Jesus. Leikirnir við Mexíkó og BNA í hættu Ekki liggur fyrir um hve alvarleg meiðsli er að ræða og hve lengi Ronaldo verður frá keppni. Portúgal á að mæta Mexíkó í vináttulandsleik á Azteca-leikvanginum í Mexíkó þann 28. mars og svo Bandaríkjunum í Atlanta þremur dögum síðar, í undirbúningi fyrir HM sem hefst eftir þrjá mánuði. „Hann þarf meðferð hjá sínum sjúkraþjálfara. Við vonum að hann snúi fljótt aftur til að hjálpa liðinu,“ sagði Jesus. Ronaldo er þriðji markahæsti leikmaður sádiarabísku úrvalsdeildarinnar í vetur með 21 mark en Ivan Toney er markahæstur með 23 mörk, fyrir Al Ahli. Al Nassr er tveimur stigum á eftir Al Ahli sem er á toppi deildarinnar.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira