HM-draumar fleiri þjóða í uppnámi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 06:49 Írakar eiga enn möguleika á því að tryggja sig inn á HM en þá þurfa leikmenn og þjálfarar þess að komast til Mexíkó. Getty/Zhizhao Wu Vonir Íraka um að komast á heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar eru í uppnámi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum þar sem leikmenn fá ekki vegabréfsáritanir fyrir umspilsmótið í Mexíkó og þjálfari liðsins er fastur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Íranir eru komnir inn á HM en vegna þess að þeir eru í stríði við gestgjafa heimsmeistaramótsins eru nánast engar líkur á því að þeir verði með á mótinu. Nágrannar þeirra í Írak eru líka að horfa upp á HM-drauminn sinn í uppnámi. „Vegna lokunar loftrýmis getur Graham Arnold, aðalþjálfari okkar, ekki yfirgefið Sameinuðu arabísku furstadæmin,“ sagði írakska knattspyrnusambandið í yfirlýsingu á Instagram á miðvikudag en ESPN segir frá. „Auk þess eru nokkur sendiráð enn lokuð um þessar mundir, sem kemur í veg fyrir að nokkrir atvinnuleikmenn, tækni- og læknisstarfsmenn fái vegabréfsáritanir til Mexíkó.“ Írak á að leika við Bólivíu eða Súrínam í Monterrey í Mexíkó þann 31. mars um eitt af síðustu tveimur sætunum á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Sambandið sagðist vera í stöðugum samskiptum við FIFA varðandi ráðstafanir fyrir þátttöku landsliðs þeirra í leiknum. Knattspyrnusamband Asíu er einnig meðvitað um alla þróun varðandi stöðuna á íranska landsliðinu. Írak freistar þess að komast á lokakeppni HM í aðeins annað sinn og í fyrsta skipti síðan 1986. Arnold, sem stýrði Ástralíu á HM 2022, sagði í síðasta mánuði að góður undirbúningur væri lykillinn að vonum liðs síns. „Ég get eiginlega ekki sagt ykkur hvorn ég held að vinni á milli Bólivíu og Súrínam en það mikilvægasta er að við gerum hlutina rétt hjá okkur sjálfum. Við verðum að tryggja að undirbúningur okkar sé réttur og að leikmennirnir séu í góðu formi og tilbúnir,“ sagði Graham Arnold við FIFA.com.
HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Írak Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira