Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 16:32 Virgil van Dijk kallar hér á leikmenn Liverpool í leik í ensku úrvalsdeildinni en titilvörnin hefur gengið hörmulega. EPA/ADAM VAUGHAN Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, sagði frá því að knattspyrnustjórinn Arne Slot hafi verið mjög reiður út í leikmenn sína eftir tap á móti botnliði deildarinnar í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Wolves vann þá 2-1 sigur á Liverpool þar sem Liverpool varð fyrsta liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að fá á sig fimm sigurmörk í uppbótartíma á einu tímabili þegar André, miðjumaður Wolves, skoraði á 94. mínútu á Molineux-leikvanginum. Markið kórónaði aðra slaka frammistöðu hjá liði Slot, sem hafði lent undir eftir mark frá Rodrigo Gomes fyrr í leiknum áður en Mohamed Salah jafnaði fyrir Liverpool á 83. mínútu. Hann var reiður „Já, hann var reiður,“ sagði Van Dijk um Slot eftir leikinn. „Að sjálfsögðu. Hann hafði fullan rétt til þess því við spiluðum illa. Það var þegar raunin í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var kannski meiri áræðni en það var samt ekki nógu gott,“ sagði Van Dijk. „Hann hafði fullan rétt til að vera reiður. Við verðum að snúa þessu nokkuð fljótt yfir í fulla einbeitingu á [Wolves í ensku bikarkeppninni] á föstudag. Það er á okkar ábyrgð, bæði líkamlega og andlega,“ sagði Van Dijk. Við vorum mjög slakir „Miðað við frammistöðu okkar þar til þeir skoruðu sitt fyrsta mark, áttum við skilið að lenda 1-0 undir. Við vorum mjög slakir. Við vorum of seinir og fyrirsjáanlegir með boltann,“ sagði Van Dijk. Tapið á þriðjudag er áfall fyrir Liverpool í baráttunni um að komast í Meistaradeildina, en Liverpool er í fimmta sæti og hefur spilað einum leik meira en Chelsea sem er í sjötta sæti. Allt okkur sjálfum að kenna „Annaðhvort komumst við í Meistaradeildina og eigum það skilið eða við komumst ekki inn og eigum það ekki skilið,“ sagði Van Dijk. „Fjórir sigrar í röð var ágætt [fyrir Wolves-leikinn], fjögur góð úrslit í erfiðum leikjum. Með það tímabil sem við erum að eiga, held ég að það hafi ekki verið mikil bjartsýni í þeim skilningi. Við fundum leið til að sigra, verjast vel og skora úr föstum leikatriðum. Í kvöld töpuðum við og það er allt okkur sjálfum að kenna. Það eru mikil vonbrigði,“ sagði Van Dijk. Vilja komast langt í ensku bikarkeppninni „Það er okkar að læra af þessu og snúa því við en þetta er erfitt fyrir okkur að kyngja og erfitt fyrir stuðningsmenn okkar að kyngja. Við verðum að halda áfram. Við komum aftur hingað á föstudag og við viljum komast langt í ensku bikarkeppninni. Þannig að við verðum að mæta hingað á föstudag með allt önnur gæði og aðra frammistöðu á vellinum,“ sagði Van Dijk.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira