Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 21:38 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir og félagar fagna marki fyrr í sumar. Vísir/Diego Stjarnan og Þór/KA unnu bæði góða sigra í Lengjubikar kvenna í fótbolta í kvöld.
Stjörnukonur sýndu styrk sinn með 5-0 stórsigri á Þrótti en Garðabæjarliðið hefur skorað sautján mörk í síðustu tveimur leikjum sínum eftir 12-0 sigur á FHL á dögunum. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir skoraði fyrsta markið á 2. mínútu eftir stoðsendingu Birnu Jóhannsdóttur og lagði svo upp mark fyrir Ingibjörgu Lúcíu Ragnarsdóttur aðeins sjö mínútum síðar. Jana Sól Valdimarsdóttir kom Stjörnunni í 3-0 á 70. mínútu eftir aðra stoðsendingu frá Birnu og Birna skoraði síðan sjálf fimm mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Fanneyju Lísu Jóhannesdóttur. Fimmta og síðasta markið skoraði síðan Nanna Lilja Guðfinnsdóttir í uppbótartímanum eftir stoðsendingu frá Jakobínu Hjörvarsdóttur. Þór/KA vann 9-0 sigur á FHL í Fjarðabyggðarhöllinni þar sem Hulda Ósk Jónsdóttir var með þrennu. Margrét Árnadóttir skoraði fyrsta markið á 14. mínútu eftir stoðsendingu systur sinnar Amalíu Árnadóttur. Hulda Björg Hannesdóttir kom Þór/KA í 2-0 á 24. mínútu eftir stoðsendingu frá Karen Maríu Sigurgeirsdóttir. Þriðja markið skoraði Bríet Fjóla Bjarnadóttir þremur mínútum síðar eftir stoðsendingu Maríu Daggar Jóhannesdóttur. Þór/KA komst síðan í 4-0 á 32. mínútu þegar Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði eftir stoðsendingu frá Margréti. Hulda Björg gat skorað fimmta markið á 34. mínútu en klúðraði þá vítaspyrnu. Norðankonur voru ekki hættar fyrir hálfleikinn því Hulda Ósk bætti við öðru markinu á lokamínútu fyrri hálfleiksins og kom Þór/KA í 5-0 eftir aðra stoðsendingu frá Amalíu. Hulda Ósk byrjaði seinni hálfleikinn með því að bæta við þriðja marki sínu á 53. mínútu, nú eftir stoðsendingu frá Bríeti Jóhannsdóttur. Bríet lagði líka upp sjöunda markið sem Ísey Ragnarsdóttir skoraði á 74. mínútu. Amalía Árnadóttir og Aníta Ingvarsdóttir skoruðu síðustu tvö mörkin eftir stoðsendingar hvor frá annarri.
Stjarnan Þór Akureyri KA FHL Þróttur Reykjavík Lengjubikar kvenna Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira