Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Dóra Júlía Agnarsdóttir og Magnús Jochum Pálsson skrifa 17. febrúar 2026 11:33 Birnir og Saint Pete voru meðal gesta á hlustunarpartýi fyrir plötuna Íslenski draumurinn. Róbert Arnar „Okei, fallega fólk. Förum aðeins yfir þetta, stóra vikan! „Kominn heim“ er mest streymda íslenska lagið í dag,“ skrifar tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel á Instagram sitt en ellefu dagar eru liðnir frá því hann og Bubbi Morthens sendu frá sér lagið „Kominn heim“.
Samhliða því er uppselt á tónleika hans, „Kristmundur Axel í 15 ár,“ sem verða haldnir í Gamla Bíó á föstudagskvöld. Herra Hnetusmjör og Kristmundur Axel illa ferskir.Róbert Arnar Kristmundur hélt í síðastliðinni viku hlustunarpartý í húsakynnum Tónhyls þar sem hann kynnti nýju plötuna sína, Íslenski Draumurinn, fyrir vinum og vandamönnum. Kvöldið var persónulegt og óformlegt þar sem gestir hlýddu á plötuna í heild sinni á meðan Kristmundur steig inn á milli laga, sagði frá hugmyndavinnunni og deildi innsýn í ferlið á bak við verkefnið. Í samtali við blaðamann segir hann að síðastliðin tvö ár hafi hann unnið hörðum höndum að plötunni ásamt góðum hópi. „Þetta hefur verið ótrúlega fallegt og tilfinningaríkt ferli. Ég var búinn að vera frekar leitandi undanfarin ár en síðan kom þessi hljóðheimur mjög náttúrulega,“ segir Kristmundur. Ég er bestur þegar ég syng frá hjartanu og gerði það auðvitað fyrst sextán ára gamall, með laginu Komdu til baka. „Þessi plata er bara lífið mitt. Þung, björt, hrá og sönn. Allur skalinn. Þormóður Eiríksson er töframaður og við gerðum þessa plötu bara saman. Hlið við hlið. Ásgeir Orri gerði síðan eitt lag með mér en það er auðvitað einn besti lagahöfundur okkar kynslóðar og við erum að fara gera meira saman á næstunni,“ segir hann. Kristmundur er í skýjunum með góðar viðtökur. „Ég er að uppskera núna, er með pakkuppselda tónleika á föstudaginn í Gamla Bíó og síðan á Græna Hattinum kvöldið eftir, en þar eru mjög fáir miðar eftir. Það er auðvitað sturlað að eiga vinsælasta lag landsins, rosaleg viðbrögð og það hefur hreyft við mörgum,“ segir hann. Í teitinu var platan í fyrsta skipti opinberlega spiluð. Hér má sjá vel valdar myndir frá gleðinni: Egill Spegill, Hreinn Orri og Saint Pete að fá sér kjúlla.Róbert Arnar Birna Eyfjörð og Hrannar Máni Ólafsson, jafnan þekktur sem tónlistarmaðurinn Óviti.Róbert Arnar Guðfinna Birta og Karitas Ósk athafnapæjur. Róbert Arnar Friðrik Dór og Fannar Sveins, vinir úr Verzló! Róbert Arnar Ásgeir Orri og Kristmundur í flottum fíling.Róbert Arnar Kristmundur, Huginn, Pétur og Flóni.Róbert Arnar Brynjar Unnsteinsson, Guðfinna Birta Valgeirsdóttir og Kristján Sturla Bjarnason - stjórn Tónhyls.Róbert Arnar Tónhylsdrengirnir Ívar Páll, Egill Airi, Kristján Saenz og Maron Birnir ásamt læriöðurnum Kristjáni Sturlu.Róbert Arnar Ízleifur Eldur og Hlynur Hákonar.Róbert Arnar Birnir í góðum félagsskap.Róbert Arnar Kristmundur með dóttur sinni.Róbert Arnar
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Hver er maðurinn? Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira