Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 14:00 Virgil van Dijk segir Milos Kerkez ákafan í að læra og sjá hjá honum miklar framfarir á tíma hans hjá Liverpool. Getty/Lewis Storey Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur sagt að liðsfélagi hans hjá Liverpool, Milos Kerkez, sé að taka „miklum framförum“ eftir erfiða byrjun á ferli sínum á Anfield.
Kerkez var keyptur frá Bournemouth síðasta sumar fyrir fjörutíu milljónir punda en hinn 22 ára gamli leikmaður var gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í upphafi tímabils. Hann hefur staðið sig frábærlega undanfarna mánuði og var einn af bestu mönnum Liverpool þegar þeir sigruðu Brighton & Hove Albion í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar á laugardagskvöld. „Ég held að það sé nokkuð ljóst að maður sér klárlega framför,“ sagði Virgil van Dijk. Enn svo ungur „Hann er enn svo ungur og er að venjast því að vera leikmaður Liverpool, það er svo miklu meira en að sparka í bolta á vellinum, sérstaklega þegar liðið hefur verið óstöðugt er ekki auðvelt að spila sína bestu leiki,“ sagði Van Dijk. „En með hjálp Robbo [Andy Robertson] og restarinnar af liðinu og hans eigin þroska held ég að hann sé að taka miklum framförum. Það sem ég sé er að hann á mikið eftir að læra og bæta sig en það er af hinu góða. Hann þarf bara að halda áfram,“ sagði Van Dijk. Hann er ákafur í að læra „Hann hefur mikla orku. Hann er ungur. Þegar við vorum ungir vorum við alltaf fullir af orku! Hann er ákafur í að læra. Auðvitað átti ég samtöl [fyrr á tímabilinu] því á vellinum þurfum við á hvor öðrum að halda, hvort sem það er staðsetning eða jafnvel [gegn Brighton] þegar hann pressar sem bakvörður og ég þarf að dekka,“ sagði Van Dijk. „Þetta er samvinna þar sem maður þarf augljóslega að skilja hvorn annan og ég og Robbo höfum haft það í svo mörg ár og maður sér það enn í leik okkar. Það er eitthvað sem þarf að þróast með leikjum. Samtöl eiga sér stað 100% á bak við tjöldin og í leikjum, eins og með restinni af liðinu, til að reyna að vera besta liðið og bestu leikmennirnir á vellinum,“ sagði Van Dijk.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira