Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2026 22:46 Síðasti heimaleikur Íslands var gegn Frökkum í október, þar sem Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði eftirminnilegt jöfnunarmark. Ísland þurfti svo að ljúka undankeppni HM á tveimur útileikjum. vísir/Vilhelm Eftir breytingarnar á Laugardalsvelli fær Ísland nú loksins að ljúka keppni á heimavelli sínum, en ekki á tveimur útileikjum, þegar keppni í C-deild Þjóðadeildarinnar lýkur í nóvember á þessu ári. Dregið var í riðla C-deildarinnar í gær og lenti Ísland, sem var í efsta styrkleikaflokki, með Búlgaríu, Eistlandi og svo annað hvort Lúxemborg eða Möltu (skýrist í lok mars). Nú hefur UEFA svo birt leikjaplanið og byrjar Ísland á leik við Eista, eins og sjá má: Leikir Íslands: Ísland - Eistland laugardaginn 26. september Lúxemborg/Malta - Ísland þriðjudaginn 29. september Ísland - Búlgaría laugardaginn 3. október Eistland - Ísland þriðjudaginn 6. október Búlgaría - Ísland föstudaginn 13. nóvember Ísland - Lúxemborg/Malta mánudaginn 16. nóvember Lokaleikur Íslands, sem mögulega ræður því hvort liðið kemst aftur upp í B-deild eins og stefnt er að, fer því fram á Laugardalsvelli. Í gegnum árin hefur Ísland alltaf endað undankeppnir stórmóta, eða keppni í Þjóðadeild, á að spila tvo útileiki enda vallaraðstæður hér á landi vart boðið upp á annað. Nú er hins vegar komið blandað gras á Laugardalsvöll, með hita undir vellinum, og því mögulegt að spila hér leiki á vegum UEFA þó komið sé fram í nóvember. Skemmst er þó reyndar að minnast þess að mikil snjókoma kom í veg fyrir að kvennalandsliðið spilaði við Norður-Írland í lok október í fyrra. Lokin á keppnum síðustu ár hjá A-landsliði karla: 2025 – Í undankeppni HM á síðasta ári endaði Ísland á útileikjum við Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. 2024 – Í B-deild Þjóðadeildarinnar endaði Ísland á útileikjum við Svartfjallaland og Wales. 2023 – Í undankeppni EM endaði Ísland á útileikjum við Slóvakíu og Portúgal. 2022 – Ekki undankeppni um haustið, vegna þess að HM var í desember, en Ísland lék í Baltic-bikarnum í nóvember. 2021 – Í undankeppni HM endaði Ísland á útileikjum við Rúmeníu og Norður-Makedóníu. 2020 – A-deild Þjóðadeildarinnar 2020 lauk á útileikjum við England og Danmörku. Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Dregið var í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar 2026 í höfuðstöðvum UEFA í Brussel í dag. Ísland spilar í C-deild og mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Möltu. 12. febrúar 2026 17:35 Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira
Dregið var í riðla C-deildarinnar í gær og lenti Ísland, sem var í efsta styrkleikaflokki, með Búlgaríu, Eistlandi og svo annað hvort Lúxemborg eða Möltu (skýrist í lok mars). Nú hefur UEFA svo birt leikjaplanið og byrjar Ísland á leik við Eista, eins og sjá má: Leikir Íslands: Ísland - Eistland laugardaginn 26. september Lúxemborg/Malta - Ísland þriðjudaginn 29. september Ísland - Búlgaría laugardaginn 3. október Eistland - Ísland þriðjudaginn 6. október Búlgaría - Ísland föstudaginn 13. nóvember Ísland - Lúxemborg/Malta mánudaginn 16. nóvember Lokaleikur Íslands, sem mögulega ræður því hvort liðið kemst aftur upp í B-deild eins og stefnt er að, fer því fram á Laugardalsvelli. Í gegnum árin hefur Ísland alltaf endað undankeppnir stórmóta, eða keppni í Þjóðadeild, á að spila tvo útileiki enda vallaraðstæður hér á landi vart boðið upp á annað. Nú er hins vegar komið blandað gras á Laugardalsvöll, með hita undir vellinum, og því mögulegt að spila hér leiki á vegum UEFA þó komið sé fram í nóvember. Skemmst er þó reyndar að minnast þess að mikil snjókoma kom í veg fyrir að kvennalandsliðið spilaði við Norður-Írland í lok október í fyrra. Lokin á keppnum síðustu ár hjá A-landsliði karla: 2025 – Í undankeppni HM á síðasta ári endaði Ísland á útileikjum við Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. 2024 – Í B-deild Þjóðadeildarinnar endaði Ísland á útileikjum við Svartfjallaland og Wales. 2023 – Í undankeppni EM endaði Ísland á útileikjum við Slóvakíu og Portúgal. 2022 – Ekki undankeppni um haustið, vegna þess að HM var í desember, en Ísland lék í Baltic-bikarnum í nóvember. 2021 – Í undankeppni HM endaði Ísland á útileikjum við Rúmeníu og Norður-Makedóníu. 2020 – A-deild Þjóðadeildarinnar 2020 lauk á útileikjum við England og Danmörku.
Leikir Íslands: Ísland - Eistland laugardaginn 26. september Lúxemborg/Malta - Ísland þriðjudaginn 29. september Ísland - Búlgaría laugardaginn 3. október Eistland - Ísland þriðjudaginn 6. október Búlgaría - Ísland föstudaginn 13. nóvember Ísland - Lúxemborg/Malta mánudaginn 16. nóvember
Lokin á keppnum síðustu ár hjá A-landsliði karla: 2025 – Í undankeppni HM á síðasta ári endaði Ísland á útileikjum við Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. 2024 – Í B-deild Þjóðadeildarinnar endaði Ísland á útileikjum við Svartfjallaland og Wales. 2023 – Í undankeppni EM endaði Ísland á útileikjum við Slóvakíu og Portúgal. 2022 – Ekki undankeppni um haustið, vegna þess að HM var í desember, en Ísland lék í Baltic-bikarnum í nóvember. 2021 – Í undankeppni HM endaði Ísland á útileikjum við Rúmeníu og Norður-Makedóníu. 2020 – A-deild Þjóðadeildarinnar 2020 lauk á útileikjum við England og Danmörku.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Dregið var í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar 2026 í höfuðstöðvum UEFA í Brussel í dag. Ísland spilar í C-deild og mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Möltu. 12. febrúar 2026 17:35 Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira
Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Dregið var í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar 2026 í höfuðstöðvum UEFA í Brussel í dag. Ísland spilar í C-deild og mætir Búlgaríu, Eistlandi og Lúxemborg eða Möltu. 12. febrúar 2026 17:35