Handbolti

Með fleiri mörk með lang­skotum en Ís­land og samt með sex færri leiki spilaða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku strákarnir töpuðu tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og misstu af verðlaunum. Svekkelsið var mikið í leikslok á bronsleiknum.
Íslensku strákarnir töpuðu tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og misstu af verðlaunum. Svekkelsið var mikið í leikslok á bronsleiknum. EPA/Thomas Traasdahl

Íslenska landsliðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í handbolta þrátt fyrir að fá lítið sem ekkert af mörkum með langskotum. Tölfræði mótsins sýnir það svart á hvítu hversu langt á eftir íslenska liðið var á eftir bestu liðum mótsins.

Íslenska landsliðið fékk aðeins skráð 34 mörk með skotum af níu metrum á mótinu en liðið spilaði níu leiki og var því aðeins að fá 3,8 slík mörk í leik.

Íslensku strákarnir eru þarna langt á eftir mörgum liðum, til dæmis skoruðu öll hin liðin í undanúrslitum miklu fleiri mörk. Þjóðverjar fengu 97 langskotsmörk á mótinu, Króatar 71 mark og Danir 62 mörk með skotum fyrir utan.

Þrátt fyrir að hafa spilað fleiri leiki en flestar þjóðir og miklu fleiri leiki en margar þjóðanna þá situr íslenska landsliðið bara í fjórtánda sæti þegar kemur að mörkum af níu metrum.

Þrettán þjóðir á þessu Evrópumóti skoruðu fleiri mörk en Ísland með langskotum og þar á meðal eru Tékkar. Tékkarnir skoruðu einu marki fleira með skotum fyrir utan en íslenska landsliðið og það þrátt fyrir að spila sex leikjum færra en Ísland á mótinu.

Íslenska liðið reyndi líka bara 68 skot með langskotum á öllu mótinu en það voru líka þrettán þjóðir sem tóku fleiri skot fyrir utan en strákarnir okkar á þessu móti.

Króatar tóku sem dæmi 167 skot fyrir utan á mótinu eða 99 fleiri langskot en Ísland tók í jafnmörgum leikjum. Þjóðverjar tóku 194 langskot eða 126 fleiri en Ísland. Íslendingar þjálfa auðvitað bæði þessi lið, Dagur Sigurðsson er með Króatana og Alfreð Gíslason með Þjóðverjana.

Þegar kemur að mörkum úr öðrum leikstöðum þá skoraði Ísland flest mörk úr hornum (53), flest mörk úr vítum (51) og flest mörk úr gegnumbrotum (66) af öllum liðum mótsins. Íslenska liðið endaði aftur á móti aðeins í tíunda sæti yfir mörk skoruð af línunni.

  • Flest mörk með langskotum á EM 2026:
  • 1. Þýskaland 97
  • 2. Króatía 71
  • 3. Danmörk 62
  • 4. Frakkland 58
  • 5. Spánn 57
  • 6. Portúgal 54
  • 7. Svíþjóð 52
  • 8. Sviss 49
  • 9. Noregur 46
  • 10. Slóvenía 43
  • 11. Ungverjaland 38
  • 12. Svartfjalland 39
  • 13. Tékkland 35
  • 14. Ísland 34



Fleiri fréttir

Sjá meira


×