Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Sví­þjóð: Ó­tal hetjur í fræknum sigri

Íþróttadeild Sýnar skrifar
Viggó Kristjánsson var markahæstur á vellinum með ellefu mörk úr ellefu skotum.
Viggó Kristjánsson var markahæstur á vellinum með ellefu mörk úr ellefu skotum. vísir/vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði sér lítið fyrir og vann átta marka sigur á Svíþjóð, 35-27, í Malmö í milliriðli II á Evrópumótinu í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var ein sú besta sem það hefur sýnt á stórmóti.

Þetta var aðeins fjórði sigur Íslands á Svíþjóð á stórmóti og hann var sannarlega glæsilegur og sannfærandi.

Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var sex mörkum yfir að honum loknum, 18-12.

Svíar sóttu hart að Íslendingum í upphafi seinni hálfleiks og minnkuðu muninn í tvígang í eitt mark. 

Íslendingar héldu haus og í stöðunni 23-22 skoruðu þeir þrjú mörk í röð og náðu yfirhöndinni á nýjan leik. Svíar minnkuðu muninn í 28-25 en Íslendingar svöruðu með fimm mörkum í röð og unnu á endanum átta marka sigur, 35-27, sem mun lifa lengi í minningunni.

Hvergi var veikan blett að finna í íslenska liðinu og frammistaða margra var á heimsmælikvarða. Viggó Kristjánsson skoraði ellefu mörk úr jafn mörgum skotum, Bjarki Már Elísson var með sex mörk og Óðinn Þór Ríkharðsson fimm.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði tuttugu skot, eða 44 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig, og vörnin var hreinasta afbragð.

Ísland er núna komið með fjögur stig í milliriðli II. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Sviss á þriðjudaginn.

Einkunnir Íslands gegn Svíþjóð: 

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 5 (20 varin skot - 57:58 mín.) Var stórkostlegur gegn Ungverjum, datt niður gegn Króötum en var svo aftur stórgóður í dag. Byrjaði nokkuð rólega en varði tvö víti frá Nikola Roganovic. Varð betri eftir því sem leið á leikinn og var algjörlega magnaður í seinni hálfleik. Skellti svo í lás undir lokin. Endaði með tuttugu varin skot og varði nær helming þeirra skota sem hann fékk á sig. Í nokkrum tilfellum var vissulega dæmt auka- og vítakast en Viktor skilaði frábærri frammistöðu í kvöld.

Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður - 5 (6 mörk - 57:40 mín.) Spilaði allan tímann og átti einn sinn besta landsleik í langan tíma. Skoraði sex mörk úr sjö skotum og kórónaði frábæran leik sinn með því að skora 35. mark Íslands úr síðustu sókninni sem var sannkölluð sirkussókn. Bjarki stóð sig líka afar vel í vörninni.

Janus Daði Smárason, vinstri skytta - 4 (2 mörk - 32:29 mín.) Gríðarlegur kraftur var í Janusi í byrjun leiks, eins og hann hefði sturtað nokkrum Monster-drykkjum í sig. Var mjög áræðinn, skoraði tvö af fyrstu fimm mörk Íslands og var þess utan magnaður í vörninni. Stoppaði Svíana hvað eftir annað.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 6 (3 mörk - 35:17 mín.) Er án vafa einn besti leikmaður heims í dag og hefur verið frábær á EM. Leikstjórn Gísla var upp á rúmlega tíu. Hann skoraði þrjú mörk, gaf ellefu stoðsendingar, fiskaði fjögur víti og þrjá brottrekstra á Svíana. Tók nánast alltaf rétta ákvörðun og lagði hvað eftir annað á borð fyrir samherja sína. 

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 4 (4 mörk - 34:56 mín.) Hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar á mótinu en spilaði einkar vel í dag. Klikkaði á eina vítinu sem hann tók en eftir það tók Viggó við því starfi. Fór af velli eftir um tuttugu mínútur og sat á bekknum þar til um rúmar tíu mínútur. Kom þá gríðarlega sterkur inn og skoraði þrjú mörk. Sýndi að hann getur alveg skotið utan af velli. Gaf auk þess fimm stoðsendingar.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 4 (5 mörk - 52:48 mín.) Einn besti leikmaður Íslands á mótinu og skilaði sínu í dag. Skoraði fimm mörk úr átta skotum og heldur áfram að spila stórvel í vörninni. Hefur spilað mikið á EM en blæs varla úr nös.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 5 (2 mörk - 44:34 mín.) Klikkaði á tveimur fyrstu skotunum sem hann tók en skoraði úr seinni tveimur. En stærsta framlag Elliða var í vörninni þar sem hann fór hamförum. Braut niður ótal sóknir sænska liðsins og náði afar vel saman með Ými í miðri vörninni. Frammistaða þeirra minnti um margt á frækna framgöngu í stórsigrinum óvænta á Frakklandi á EM 2022. 

Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 5 (0 mörk - 32:31 mín.) Var ekki upp á sitt besta í síðasta leik en Ýmir var í ham í kvöld. Gekk hart fram í vörninni en var skynsamur. Lokaði vel á línuspil Svía, var líka duglegur að fara út í skyttur þeirra og hjálparvörnin var fyrirtak.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 6 (11/5 mörk - 25:46 mín.) VÁ! Þvílík og önnur eins frammistaða hjá Seltirningnum. Ellefu mörk og hundrað prósent skotnýting. Sýndi fádæma öryggi í vítunum en framan af leik var hans aðal hlutverk að taka þau. Kom svo inn á eftir um tuttugu mínútur og byrjaði að raða inn mörkum utan af velli. Sýndi hvað eftir annað magnaða skottækni sína og fór illa með sænsku markverðina. Viggó var einnig afar sterkur í vörninni og var duglegur að stíga út á réttum tíma til að trufla sænsku sóknarmennina.

Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 4 (1 mark - 26:10 mín.) Eftir að Albin Lagergren ybbaði gogg við Hauk rann hamur á Selfyssinginn rólynda. Átti magnaðan kafla í vörninni í seinni hálfleik og sýndi að hann getur vel staðið sig á þeim enda vallarins. Skoraði eitt mark og spilaði af skynsemi í sókninni.  

Arnar Freyr Arnarsson, línumaður - 4 (1 mark - 12:50 mín.) Spilaði ekki mikið en lagði sitt af mörkum. Skoraði eitt mark og kom sterkur inn í vörnina undir lokin.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (0 mörk - 46 sek) Tók eitt neyðarskot sem missti marks.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - (15 sek) Reyndi sig við eitt vítakast undir lok leiks.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - (spilaði ekkert)

Teitur Örn Einarsson, hægri hornamaður - (spilaði ekkert)

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - (spilaði ekkert)

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Sýnar leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur

Tengdar fréttir

„Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“

„Mér líður vel, allavega betur en eftir síðasta leik,“ sagði nokkuð hógvær Snorri Steinn Guðjónsson eftir magnaðan átta marka sigur Íslands gegn Svíum á EM í handbolta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×