„Mig kitlar svakalega í puttana“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. janúar 2026 19:00 Þorsteinn Leó Gunnarsson er allur að koma til eftir erfið nárameiðsli. Vísir/Vilhelm Þorsteinn Leó Gunnarsson var á meðal hressari manna í Malmö í dag eftir að hafa tekið fullan þátt í æfingu í fyrsta sinn í tíu vikur.
Þorsteinn Leó hefur verið með íslenska hópnum allt mótið en æft lítið vegna nárameiðsla sem hafa plagað hann síðustu vikur. Vonir standa til þess að hann geti tekið þátt á síðari hluta mótsins. Klippa: Þorsteinn manna glaðastur í Malmö Hann segir gott að koma yfir til Malmö frá Kristianstad. „Þetta er fínasti staður hérna. Þetta er held ég stærsta hótel sem ég hef verið á, 20 hæðir eða eitthvað,“ segir Þorsteinn sem er á batavegi. „Mér líður þokkalega. Þetta er á síðustu metrunum að verða heill. Mér líður mjög vel og verð heill, vonandi sem fyrst,“ segir Þorsteinn. Þorsteinn tók fullan þátt í æfingu dagsins og var himinlifandi með það.Vísir/Vilhelm Hann tók þá fullan þátt í æfingu dagsins, í fyrsta sinn í ferðinni. „Í dag var ég með í öllu. Vörn, sókn og allt. Æfingin var kannski ekki á háu tempoi en ég er kominn í allt saman og reyni að vera klár,“ segir Þorsteinn sem gat vart sofið vegna spennu fyrir æfingunni. „Í gær og nótt var það: „Djöfull er ég spenntur að fara á æfingu á morgun“. Ég hef ekki verið á hópæfingu í níu eða tíu vikur. Þetta var geðveikt.“ Þorsteinn segir þá upplifunina hafa verið sérstaka, að vera hluti af liðinu en samt ekki. Enda hefur hann ekki æft almennilega fyrr en í dag. „Þetta er mjög skrýtið. Maður er með liðinu allan daginn en ert ekki að spila og ekki á æfingum heldur mikið einn í þínu. Ég hef aldrei gert þetta áður. Þetta er nýtt fyrir mér að vera meiddur og hvað þá meiddur svona lengi,“ segir Þorsteinn sem segir liðið klárt í framhaldið. „Andinn er mjög góður. Það eru allir hressir og ferskir og við mætum góðir í milliriðilinn.“ Þá hlakkar hann sérlega mikið til að snúa aftur á völlinn. „Mig kitlar svakalega í puttana að komast á völlinn aftur. Vonandi sem fyrst,“ segir Þorsteinn léttur. Viðtalið má sjá í spilararnum.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira