Handbolti

Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Ís­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Svíar unnu frábæran sigur á Króötum í gærkvöld og fara kokhraustir inn í milliriðilinn.
Svíar unnu frábæran sigur á Króötum í gærkvöld og fara kokhraustir inn í milliriðilinn. Getty/Sanjin Strukic

Eftir átta marka sigurinn gegn Króatíu í gærkvöld gætu Svíar tapað fyrir Íslandi á sunnudaginn en samt komist áfram í undanúrslitin á EM í handbolta.

Þetta skrifar Ola Selby, ritstjóri sænska handboltamiðilsins Handbollskanalen og blaðamaður GoHandball.

Selby hefur haft mikla trú á íslenska liðinu og spáði því fyrir mót að liðið myndi spila um bronsverðlaun.

Ljóst er að hann taldi, líkt og fleiri, að baráttan um efstu tvö sætin í milliriðli Íslands, og þar með sæti í undanúrslitum, yrði á milli Svíþjóðar, Króatíu og Íslands. Svíar séu því í draumastöðu eftir sigurinn í gær en þeir byrja á að mæta Slóvenum á morgun og í riðlinum eru einnig Ungverjaland og Sviss.

Svona er staðan í milliriðli II. Svíþjóð, Slóvenía og Ísland tóku með sér stigin tvö úr sigrum sínum gegn Króatíu, Sviss og Ungverjalandi. Hvert lið á nú eftir að spila fjóra leiki.EHF

„Þökk sé sigrinum [33-25 gegn Króatíu] tekur Svíþjóð tvö stig með í milliriðilinn sem skapar draumaaðstæður í baráttunni um sæti í undanúrslitum,“ skrifar Selby á Handbollskanalen og heldur áfram:

„Í rauninni hefur Svíþjóð efni á að tapa fyrir til dæmis Íslandi og myndi samt komast í undanúrslit, svo framarlega sem liðið myndi vinna hina þrjá leikina sína. Þetta var staðan sem margir bjuggust við fyrir fram, eftir að dregið var í riðla, en sænska liðið á hrós skilið fyrir að hafa höndlað pressuna og unnið alla þrjá leikina til þessa.“

Að sama skapi er algjörlega ljóst að fyrir Íslendinga er leikurinn við Króata á morgun nú orðinn algjör lykilleikur. Tap í þeim leik gæti mögulega þýtt að sigrar gegn Svíþjóð, Sviss og Slóveníu myndu ekki duga til að komast í undanúrslit. Sú staða kom upp á HM í fyrra þar sem Ísland endaði með jafnmörg stig og Egyptaland og Króatía í milliriðli en féll úr leik vegna innbyrðis markatölu, þrátt fyrir að hafa aðeins tapað einum leik á mótinu.

Keppnin í milliriðli er hins vegar ekki hafin og það eina sem vitað er fyrir víst er að Svíþjóð, Ísland og Slóvenía hefja þar leik með tvö stig í farteskinu en Króatía, Ungverjaland og Sviss eru án stiga. Tvö efstu liðin komast í undanúrslit.

Leikirnir í milliriðli II

Föstudagurinn 23. janúar 

  • 14.30 Ísland - Króatía
  • 17.00 Sviss - Ungverjaland
  • 19.30 Slóvenía - Svíþjóð

Sunnudagurinn 25. janúar 

  • 14.30 Slóvenía - Ungverjaland
  • 17.00 Ísland - Svíþjóð
  • 19.30 Sviss - Króatía

Þriðjudagurinn 27. janúar 

  • 14.30 Ísland - Sviss
  • 17.00 Slóvenía - Króatía
  • 19.30 Svíþjóð - Ungverjaland

Miðvikudagurinn 28. janúar

  • 14.30 Ísland - Slóvenía
  • 17.00 Króatía - Ungverjaland
  • 19.30 Sviss - Svíþjóð



Fleiri fréttir

Sjá meira


×