Strákarnir hans Dags fengu skell Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2026 21:10 Dagur Sigurðsson var ekki sáttur á hliðarlínunni í kvöld enda fengu hans menn skell. EPA/Andreas Hillergren Svíar tryggðu sér sigurinn í E-riðlinum á Evrópumótinu í handbolta eftir átta marka sigur á Króatíu í kvöld, 33-25. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar fara því stigalausir áfram í milliriðil.
Svíar voru sterkari frá upphafi leiks, komust í 2-0, 3-1 og 11-8 og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 17-13. Zvonimir Srna skoraði sex af mörkum Króata í fyrri hálfleiknum en það dugði ekki til, ekki frekar en að Dominik Kuzmanović var að verja ágætlega. Sænska vélin mallaði vel og margir voru að skila til liðsins. Andreas Palicka gerði hlutina enn erfiðari með því að verja vel í seinni hálfleiknum. Hann var valinn maður leiksins. Ekki fór þetta vel af stað í seinni hálfleik þegar Svíar skoruðu tvö fyrstu mörkin og komust sex mörkum yfir, 19-13. Eftir það var nokkuð ljóst hvernig þessi leikur færi og sigur Svíanna varð á endanum afar sannfærandi. Svíar mæta því með tvö stig í milliriðilinn alveg eins og Ísland og Slóvenía. Króatar byrja stigalausir eins og Svisslendingar og Ungverjar. Sænska liðið er á heimavelli, hefur unnið alla þrjá leiki sína á mótinu með fimm mörkum eða meira og er til alls líklegt í keppninni.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira