Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. janúar 2026 14:03 Fyrirliðinn Pauli Jacobsen var tolleraður. roysni.fo/sverri egholm Færeyingar féllu úr leik á Evrópumótinu í handbolta í gærkvöldi með mjög svekkjandi hætti. Stuðningsmenn liðsins gátu þó glaðst yfir flottum árangri á mótinu. Leikmönnum var allavega vel tekið eftir leikinn í gær.
Um sjö þúsund Færeyingar lögðu leið sína á Evrópumótið, eða um tólf prósent allrar þjóðarinnar. Flugmenn landsins hafa unnið mikla yfirvinnu til að koma öllum mannfjöldanum til Noregs og Norræna ferjan flutti líka fjölda farþega, margir þeirra gistu þar um borð við hafnarbakkann í Osló. Leikskólum og ýmissi annarri starfsemi í landinu var lokað og þá lagði þingið niður störf því flestir þingmenn Færeyja mættu á mótið Sterkt jafntefli varð niðurstaðan í fyrsta leik gegn Sviss og frækinn fyrsti sigur Færeyinga á stórmóti vannst síðan gegn Svartfjallalandi, en svekkjandi tap varð niðurstaðan gegn Slóveníu í gær, eftir að Færeyingar höfðu verið tveimur mörkum yfir um miðjan seinni hálfleik. Færeyjar komust þess vegna ekki áfram í milliriðil í fyrsta sinn á stórmóti og mannfjöldinn mikli er nú á heimleið en ekki til Malmö í Svíþjóð eins og vonast var til. Svekkelsið var skiljanlega mikið meðal leikmanna og stuðningsmanna, en þau voru fljót að bæta úr því. Stuðningsmenn Færeyja héldu eftirpartý í gömlum bragga við Fornebu flugvöllinn í Oslo, þar sem þúsundir manna mættu og fögnuðu árangri liðsins. Færeyingar gerðu gamalt flugskýli í Osló að sínum heimavelli á meðan mótinu stóð. Færeyski miðillinn Roysni segir frá eftirpartýinu og Sverri Egholm festi fjörið á filmu. Landsliðsmenn Færeyja mættu síðan á svæðið og þeim var gríðarlega vel tekið, fyrirliðinn var tolleraður og aðrir leikmenn munduðu míkrafóninn. Lögin „Sunnukvøld í Mai“ og „Ormurin Langi“ voru sungin er færeyskir stuðningsmenn drekktu í sig stórmótastemninguna í síðasta sinn, á þessu ári allavega. Fleiri flottar myndir úr þessa stórskemmtilega eftirpartýi má finna hér hjá Roysni.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira