Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Sindri Sverrisson skrifar 27. desember 2025 16:56 Brentford-menn fögnuðu vel í dag. Getty/Shaun Brooks Brentford kom sér upp í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag, með góðum 4-1 sigri gegn Bournmouth þar sem Kevin Schade gerði þrennu. Fulham vann dísætan sigur í Lundúnaslag gegn West Ham en Burnley og Everton gerðu markalaust jafntefli.
Bournemouth hefur ekki unnið leik síðan í október og það breyttist ekki í dag þegar liðið tapaði fyrir Brentford. Kevin Schade skoraði tvö mörk og Djordje Petrovic fékk skráð á sig sjálfsmark, og var staðan orðin 3-0 eftir fimmtíu mínútna leik. Antoine Semenyo, sem allt útlit er fyrir að haldi til Manchester City í janúar, minnkaði muninn af stuttu færi þegar korter var til leiksloka en minni varð munurinn ekki. Þess í stað fullkomnaði Schade þrennuna sína með skalla á síðustu mínútu. Brentford er núna í 8.-10. sæti með 26 stig, aðeins þremur stigum frá 5. sæti sem er mögulegt Meistaradeildarsæti. Bournemouth nálgast hins vegar enn fallsvæðið og er með 22 stig í 15. sæti. Jiménez hetja Fulham Harry Wilson hefur verið sjóðheitur fyrir Fulham og hann lagði upp sigurmark Raúl Jiménez gegn West Ham, með skalla fimm mínútum fyrir leikslok. West Ham hefur því ekki unnið neinn af síðustu sjö leikjum sínum og er í 18. sæti með 13 stig, fimm stigum frá næsta örugga sæti. Fulham er hins vegar með 26 stig líkt og Crystal Palace og Brentford í 8.-10. sæti. Burnley áfram næstneðst Engin mörk voru hins vegar skoruð í leik Burnley og Everton. Burnley var nær því að finna sigurmark í lokin en inn vildi boltinn ekki. Burnley er því áfram í 19. sæti, nú með 12 stig, en Everton er í 11. sæti með 25 stig.
Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira