Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 10:00 Arne Slot er ósáttur út í Micky van de Ven. Vísir/Getty Arne Slot segir Alexander Isak eiga eftir að vera fjarverandi í allavega tvo mánuði. Sænski framherjinn brákaði bein í fæti þegar hann var tæklaður af varnarmanni Tottenham um helgina.
Micky van de Ven renndi sér í Isak þegar Svíinn skoraði fyrra mark Liverpool í 2-1 sigri í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Markið og tæklinguna má sjá eftir rúma mínútu í spilaranum hér fyrir neðan. Liverpool staðfesti vondan grun stuðningsmanna í gærkvöldi þegar félagið greindi frá því að Isak hefði brákað dálkbein í ökkla og gengist undir aðgerð. „Þetta verða löng meiðsli, allavega tveir mánuðir. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir hann og okkur“ sagði svo þjálfari liðsins, Arne Slot, við BBC. „Fyrir mér er þetta glórulaus tækling. Ef þú tæklar svona tíu sinnum mun leikmaður meiðast alvarlega tíu sinnum“ sagði Slot einnig. Ekki eru þó allir sammála Slot og meira að segja einn harðasti Liverpool maður heims, Jamie Carragher, fyrrum leikmaður liðsins og sparkspekingur á SkySports, kom Micky van de Ven til varna í gær. „Ef ég set mig í hans spor, þá er þetta tækling sem ég hefði hent mér í. Hann er að reyna að komast fyrir boltann og hittir hann bara í kjölsoginu, þetta er óheppilegt en ég sé ekkert að þessu. Þú getur ekki bara leyft framherjanum að skjóta úr svona stöðu, en þetta er mjög óheppilegt fyrir Isak því þetta var líklega í fyrsta sinn sem hann átti góðan leik fyrir Liverpool“ sagði Carragher.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira