Slot fámáll um stöðuna á Isak Aron Guðmundsson skrifar 20. desember 2025 20:02 Slot bíður og vonar að meiðsli Isak séu ekki alvarleg Vísir/Getty Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir erfitt að segja til um það svo stuttu eftir leik hvort meiðsli Alexander Isak, sem framherjinn varð fyrir í sigri gegn Tottenham í kvöld, haldi honum frá keppni eða ekki
Liverpool vann góðan 2-1 sigur á Tottenham í 17.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem að tvö rauð spjöld fóru á loft. Stuðningsmenn Liverpool geta leyft sér að gleðjast yfir sigrinum en sorg gerir þó einnig vart um sig. Alexander Isak skoraði fyrsta mark liðsins en þurfti í kjölfarið að fara meiddur af velli. „Það er erfitt að segja til um stöðuna svona stuttu eftir leik, hvað sé að hrjá hann,“sagði Slot um stöðuna á Isak í viðtali eftir leik kvöldsins. „Vonandi verður allt í lagi með hann. Við þurfum að bíða og sjá.“ Slot tekur ýmislegt jákvætt með sér í tengslum við frammistöðu síns liðs í kvöld en segir ekki hægt að líta fram hjá því að síðustu mínútur leiksins voru þær verstu hjá hans mönnum en tveimur leikmönnum færri ógnaði Tottenham marki Liverpool trekk í trekk. „Þú mannst alltaf best eftir síðustu mínútum leikja. Það voru okkar verstu mínútur í þessum leik en það er margt jákvætt við okkar frammistöðu. Ég er hrifinn af frammistöðunni að mestu leiti og sáttur með stigin þrjú.“ Sigur Liverpool staðreynd og þrjú stig í pokann. Eftir erfiðar vikur þar sem að pressan varð mikil á Slot virðast Englandsmeistararnir vera að rétta úr kútnum. „Við höfðum góða stjórn á leiknum, bæði lið sköpuðu ekki mikið. Við erum ósigraðir í síðustu sex leikjum í öllum keppnum (fjórir sigrar og tvö jafntefli), það er nær því sem við ætlumst til af okkur. Báðar níurnar okkar skora, Isak og Hugo Ekitike. Jákvæðir hlutir sem við tökum með okkur.“
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira