Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Valur Páll Eiríksson skrifar 19. desember 2025 21:15 Liverpool Unveil New Signing Jeremie Frimpong KIRKBY, ENGLAND - MAY 30: Jeremie Frimpong new signing of Liverpool at AXA Training Centre on May 30, 2025 in Kirkby, England. (Photo by Nikki Dyer - LFC/Liverpool FC via Getty Images) Stuðningsmenn Liverpool ættu að geta barið Jeremie Frimpong augum í fyrsta sinn um hríð er liðið mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Frimpong hefur verið frá síðan í október.
Frimpong skipti til Liverpool frá Bayer Leverkusen í sumar til að fylla í skarð Trent Alexander-Arnold í hægri bakvarðarstöðu liðsins eftir brottför þess síðarnefnda til Real Madrid. Á meðal helstu rakanna fyrir kaupum á Frimpong fyrir fúlgur fjár var sú hversu áreiðanlegur hann var hjá þýska liðinu. Á þremur leiktíðum missti kappinn ekki af einum einasta leik vegna meiðsla. Sú hefur ekki verið raunin í Bítlaborginni. Frimpong hefur aðeins náð að spila 90 mínútur í tveimur leik það sem af er vetri, gegn Crystal Palace í Samfélagsskildinum í upphafi móts og í deildabikarleik við Southampton í september. Frimpong meiddist aftan á læri eftir fyrsta leik Liverpool í deild. Hann sneri aftur í september og lék áðurnefndan leik í deildabikarnum auk þriggja leikja í deildinni, þó alla af bekknum og töldu þær þrjár innkomur alls 24 mínútur. Hans síðasti leikur var gegn Manchester United þann 19. október síðastliðinn og hafa lærismeiðslin haldið honum frá síðan þá. Það var aftur móti greint frá því í dag að Frimpong snúi aftur í leikmannahóp Liverpool á morgun þegar liðið mætir Tottenham Hotspur í Lundúnum. The Athletic greinir frá því að sérlega mikil áhersla hafi verið lögð á mjúkar hreyfingar í endurkomunni þar sem Frimpong hafi sinnt pílates og jóga af mikilli áfergju og hyggist gera það áfram samhliða boltaæfingum til að koma í veg fyrir frekari meiðsli þegar fram líða stundir. Það hafi gert að verkum að Frimpong sé nú snúinn aftur á undan áætlun en lengi vel var útlit fyrir að hann sneri ekki aftur á völlinn fyrr en á nýju ári. Leikur Liverpool við Tottenham er klukkan 17:30 á morgun og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira