Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Sindri Sverrisson skrifar 19. desember 2025 23:15 Feðgarnir Lucho og Lihuen fengu draumaferð á Anfield. Premier League Argentínsku feðgarnir Lucho og Lihuen fengu draum sinn uppfylltan og rúmlega það þegar þeim var boðið að mæta á Anfield að hitta hetjurnar sínar og sjá liðið sem þeir elska, Liverpool, spila.
Hjartnæmt myndband af aðdragandanum og heimsókn feðganna má sjá hér að neðan og mátti ekki á milli sjá hvor þeirra var spenntari. Til marks um ást pabbans á Liverpool, sem varað hefur í rúma fjóra áratugi, þá eru upphafsstafirnir í nafni sonarins LFC. Klippa: Feðgar fengu draumaferð á Anfield Feðgarnir ferðuðust 11.000 kílómetra frá Buenos Aires til Liverpool og á Anfield tók landi þeirra, heimsmeistarinn Alexis Mac Allister, á móti þeim. Mac Allister gekk með feðgana um svæði leikmanna og var Lihuen, sem er 10 ára, nánast fallinn í yfirlið þegar hann fékk að faðma sjálfan Mohamed Salah. Lihuen fékk þó aðeins að sjá Salah spila seinni hálfleikinn, í 1-1 jafnteflinu við Sunderland þar sem Florian Wirtz sá til þess að Liverpool fengi þó alla vega eitt stig og feðgarnir gætu fagnað dátt einu marki. Þeir fengu sæti á besta stað á Anfield og fengu jafnframt að hitta fyrirliðann Virgil van Dijk að leik loknum. Feðgarnir verða án efa með kveikt á sjónvarpinu á morgun þegar Liverpool sækir Tottenham heim í afar áhugaverðum leik í 17. umferð. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma.
Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira