Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2025 07:06 Frost verður yfirleitt á bilinu núll til sjö stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir tíðindalítið veður á landinu í dag þar sem áttin verður breytileg – gola eða kaldi – og víða bjart. Líkur á einhverjum éljum við ströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að frost verði yfirleitt á bilinu núll til sjö stig. „Í kvöld kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf, það bætir smám saman í vind og á morgun ganga skil lægðarinnar norður yfir landið. Í fyrramálið verður því allhvöss eða hvöss austanátt á landinu og úrkoma með köflum í flestum landshlutum, ýmist rigning, slydda eða snjókoma, en á norðaustan- og austanverðu landinu verður vindur hægari og á Austfjörðum má búast við talsverðri úrkomu um tíma. Það dregur síðan úr vindi, norðaustan og austan kaldi eða strekkingur seinnipartinn, en áfram hvasst norðvestantil auk þess sem búast má við hríðarveðri á Vestfjörðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan 13-20 m/s um morguninn og rigning, slydda eða snjókoma með köflum, en hægari um landið austanvert. Dregur síðan úr vindi, norðaustan og austan 8-15 síðdegis, en hvassviðri og hríð norðvestantil. Hiti víða 0 til 7 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Norðvestan 10-18, en hægari norðaustan- og austanlands. Skúrir sunnantil, en dálítil snjókoma eða slydda fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Dregur úr vindi seinnipartinn. Á föstudag: Austlæg átt 5-13 og skúrir eða él á víð og dreif. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum. Á laugardag: Norðlæg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt um landið sunnanvert. Heldur kólnandi. Á sunnudag (vetrarsólstöður): Breytileg átt, bjart með köflum og víða vægt frost. Á mánudag: Suðlæg átt og bjartviðri, en þykknar upp um landið vestanvert. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira