Færeyingar í skýjunum: „Sennilega besti leikur sem ég hef spilað“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2025 10:48 Jana Míttun var ein af hetjum Færeyinga gegn Spánverjum á HM í handbolta. epa/Liselotte Sabroe Kvennalandslið Færeyja í handbolta gerði sér lítið fyrir og vann Spán, 27-25, á HM í gær. Mikil gleði var í herbúðum Færeyinga eftir sigurinn sem var þeirra fyrsti á stórmóti.
Jana Míttun skoraði tvö síðustu mörk færeyska liðsins í leiknum í gær og sex mörk alls. Hún réði sér ekki fyrir kæti í leikslok. „Þetta er sennilega besti leikur sem ég hef nokkru sinni spilað. Líka með stuðningsmönnunum okkar; þetta var frábært,“ sagði Míttun sem leikur með Viborg í Danmörku. „Þetta er fyrsta heimsmeistaramótið okkar og við vorum ekki sigurstranglegra liðið. Okkur langaði að koma á óvart og mér fannst að við höfum gert það.“ Jana er systir Óla Míttun sem leikur með karlalandsliði Færeyja og GOG í Danmörku. Jana hefði verið til í að hafa bróður sinn í stúkunni. „Ég vildi óska þess að hann væri hér. Aftur á móti eru margir úr fjölskyldu minni hér og við þekkjum næstum alla stuðningsmennina.“ Draumur sem rættist Pernille Brandenborg, sem var markahæst í færeyska liðinu með sjö mörk, var í álíka mikilli sigurvímu eftir leikinn. „Stutta svarið er nei,“ sagði Brandenborg aðspurð hvort hún skildi hvað hefði gerst. „Ég er næstum búin að missa röddina af fagnaðarlátum. Þetta var algjörlega frábært og draumur sem rættist.“ Eftir sigurinn í gær eru Færeyjar svo gott sem komnar í milliriðla á HM. Ef færeyska liðið vinnur það paragvæska á morgun fer það með tvö stig í milliriðil. Líklegt er að Ísland og Færeyjar verði saman í milliriðlinum en Íslendingar komast þangað svo lengi sem þeir tapa ekki fyrir Úrúgvæum á morgun.
HM kvenna í handbolta 2025 Færeyjar Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira