Unnu og færðust nær HM en púaðir af velli og þjálfarinn aldrei verið jafn ósáttur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2025 08:03 Skotar unnu Hvít-Rússa í gær en engin ánægja var með spilamennsku þeirra. getty/Craig Foy Þrátt fyrir að skoska karlalandsliðið í fótbolta hafi færst nær sínu fyrsta heimsmeistaramóti í 28 ár var þjálfari þess afar ósáttur eftir sigurinn á Hvíta-Rússlandi í gær.
Skotar unnu leikinn á Hampden Park, 2-1, og eru að minnsta kosti öruggir með sæti í umspili um sæti á HM. Skotland hefur ekki spilað á heimsmeistaramótinu síðan 1998. Skotland vann einnig Grikkland á fimmtudaginn, 3-1, og fékk því fullt hús stiga í þessum landsleikjaglugga. En samt stökk Clarke ekki bros eftir leikinn gegn Hvíta-Rússlandi. „Ef þú hefðir sagt fyrirfram að við fengjum sex stig væru allir mjög glaðir,“ sagði Clarke. „En ég verð að vera heiðarlegur. Ég er mjög, mjög vonsvikinn með liðið mitt. Mér fannst við ekki spila nálægt okkar getu og það var mjög svekkjandi. Við fengum þrjú stig sem huggar okkur en annars klórum við okkur í höfðinu yfir því af hverju við vorum svona slakir.“ Clarke stýrði Skotum í 72. sinn í gær sem er met. Fyrirliði skoska liðsins, Andy Robertson, sagðist aldrei hafa séð Clarke jafn reiðan og í hálfleik gegn Hvíta-Rússlandi. Stuðningsmenn Skotlands púuðu á liðið eftir leikinn í gær, þrátt fyrir sigurinn mikilvæga. Skotar mæta Grikkjum í næstsíðasta leik sínum í C-riðli í næsta mánuði. Í lokaleiknum mætast svo Skotland og Danmörk en það verður væntanlega úrslitaleikur um efsta sætið í riðlinum.
HM 2026 í fótbolta Skoski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira