Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs Sindri Sverrisson skrifar 20. ágúst 2025 09:28 Úlfur Ágúst Björnsson hefur ekki getað klárað síðustu tímabil með FH vegna þess að hann spilar einnig með Duke háskólanum í Bandaríkjunum. vísir / ernir FH-ingurinn Úlfur Ágúst Björnsson hefur verið valinn bestur allra leikmanna bandaríska háskólafótboltans nú þegar ný leiktíð fer að hefjast.
Úlfur skoraði tvö mörk í þrettán leikjum fyrir FH í sumar og hefur alls skorað átján mörk í 56 leikjum í efstu deild hér á landi. Hann er nú farinn aftur út til Bandaríkjanna þar sem hann hefur tekið þátt í undirbúningstímabili með Duke háskólanum og byrjar sína þriðju leiktíð með liðinu á leik við San Diego á morgun. Aðstandendur TopDrawerSoccer hafa nú tekið saman hundrað manna lista yfir bestu leikmenn háskólaboltans og setja Úlf þar í efsta sætið. Listinn verður svo uppfærður þegar líður á tímabilið. View this post on Instagram A post shared by Duke Men's Soccer (@dukemsoc) Úlfur hefur farið á kostum fyrir Duke og skoraði þrettán mörk í nítján leikjum á síðustu leiktíð, auk þess að gefa þrjár stoðsendingar, og hefur alls skorað 23 mörk og gefið sjö stoðsendingar í 53 leikjum á tveimur tímabilum. Það er sömuleiðis til marks um það í hve miklum metum Úlfur er í deildinni að hann komst í undanúrslit í valinu á MAC Hermann einstaklingsverðlaununum á síðustu leiktíð. View this post on Instagram A post shared by TopDrawerSoccer (@topdrawersoccer)
FH Bandaríski fótboltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira