Fótbolti

Sjáðu stór­kost­legt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jonsdóttir skoraði frábært mark í Serbíu í kvöld.
Sveindís Jane Jonsdóttir skoraði frábært mark í Serbíu í kvöld. Getty/Daniela Porcelli

Stelpurnar okkar mæta brosandi á Evrópumótið í Sviss eftir 3-1 sigur á Serbíu í kvöld í generalprufu sinni fyrir EM.

Þetta var langþráður sigur hjá íslenska liðinu sem fagnaði síðast sigri í júlí á síðasta ári.

Íslensku stelpurnar voru staðráðnar í að breyta því og voru komnar í 2-0 eftir fimm mínútur.

Fyrst skoraði Sandra María Jessen eftir sendingu frá Alexöndru Jóhannsdóttir og svo skoraði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir með laglegu langskoti eftir sendingu Sveindísar Jane Jónsdóttur.

Sveindís Jane skoraði svo stórkostlegt mark á 58. mínútu. Hún fékk boltann á vallarhelmingi Íslands, sneri af sér varnarmann Serba og tók af rás upp völlinn. Þetta hlaup endaði svo með glæsilegu skoti upp í markhornið. Algjörlega óverjandi skot.

Serbía minnkaði muninn þegar rúmlega tuttugu mínútur voru eftir af leiknum eftir góða sókn. Diljá Ýr Zomers var nálægt því að bæta við fjórða markinu seint í leiknum, en skot hennar endaði í slánni.

Íslenska liðið vann því góðan 3-1 sigur og hér fyrir neðan má sjá mörk liðsins í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×