Íslenski boltinn

„Þó við lentum undir missti enginn móðinn“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Magnús Már í djúpum pælingum.
Magnús Már í djúpum pælingum. vísir / diego

„Vinnusemi fyrst og fremst, og liðsheild“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hafa skapað 4-1 sigurinn gegn ÍA í elleftu umferð Bestu deildar karla. Hann var ánægður með sína menn sem misstu aldrei móðinn og gaf lítið fyrir mikilvægi þess að hafa endurheimt heimavallarvígið. 

„Það voru allir að leggja sig 120 prósent fram í verkefnið. Reyndi á, á köflum, Skagamenn voru öflugir og lömdu á okkur. Lentum undir en sýndum karakter með því að jafna og komast síðan yfir. Ótrúlega ánægður með vinnuframlagið hjá öllum“ sagði Magnús og vísaði til allra innan vallar sem utan.

Spurður nánar út í sköpun sigursins, taktík liðsins og svo framvegis, talaði Magnús um fjölbreytni en hann hefði viljað nýta fyrirgjafirnar í fyrri hálfleik betur.

„Þessi mörk eru fjölbreytt og góð mörk. Fyrsta markið setjum við þá undir pressu og í seinni hálfleik komumst við hratt upp völlinn og í góðar stöður þannig…

Við gerum það vel og mér fannst við verjast líka vel í leiknum… Svo fengum við fjölda fyrirgjafa í fyrri hálfleik sem maður hefði viljað sjá okkur aðeins grimmari á, þá hefðum við jafnvel náð að vera yfir í hálfleik“ sagði Magnús.

Afturelding endurheimti heimavallarvígið í kvöld eftir vont tap gegn Val í síðasta heimaleik og hefur nú unnið farið taplaust í gegnum fimm af sex heimaleikjum, fjórir þeirra unnust.

„Þetta er nú einhver samkvæmisleikur hjá ykkur með þennan heimavöll, hann er bara góður og okkur líður vel hérna að sjálfsögðu, en ég horfi mest í frammistöðuna.

Við spiluðum fínt í síðasta heimaleik og stundum dugir það ekki en ég hef verið ánægður með spilamennskuna í öllum heimaleikjum. Það var kalt og leiðinlegur leikur [0-2 gegn Val] sem við viljum gleyma sem fyrst, en allir hinir hafa verið góðir frammistöðulega séð.

Eftirminnilegir þessir sigurleikir hérna og þetta var bara einn í viðbót, sem er geggjað. Mikil trú hjá strákunum á verkefnið og það skein í gegn frá fyrstu mínútu, þó við lentum undir missti enginn móðinn eða trúna“ sagði Magnús að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×