Vestri tók á móti KA á Kerecis-vellinum á Ísafirði í Besta deild karla í knattspyrnu í dag. Heimamenn unnu 1–0 sigur og snéru þar með aftur á sigurbraut eftir tap í síðustu umferð.
Leikurinn í dag byrjaði frekar rólega og voru um tuttugu mínútur búnar af leiknum þegar Vestri fór að taka aðeins yfir leikinn en aldrei nein almennileg hætta á ferð.
Það var svo á 34. mínútu að Diego Montiel fær boltann vinstra meginn við teiginn, tekur eina gabbhreyfingu og sendir varnarmenn KA í grasið. Leggur hann svo í nærhornið fram hjá William við mikinn fögnuð flestra þeirra 315 sem voru mættir á völlinn í dag.
Á 45. mínútu þurfti svo Ásgeir frá að hverfa eftir að hafa farið í grasið eftir baráttu við Fatai, í fallinu að þá fær Ásgeir spark í höfuðið og virðist hafa rotast. Algjör óviljaverk og vonum við að Ásgeir hljóti snöggan bata.
Í seinni hálfleik var þetta mikið til það sama og í þeim fyrri en þó voru KA menn ívið betri. Varnarlína Vestramanna var þó skipulögð og tókst KA mönnum ekki að brjóta þá á bak aftur, þrátt fyrir harða atlögu, sérstaklega undir lok leiksins.
Mikilvægur 1-0 sigur fyrir Vestra sem koma sér aftur á sigurbrautina eftir þrjú töp í síðustu fjórum leikjum og ætla þeir greinilega að halda sér í toppbaráttunni. KA menn hins vegar geta farið í fallsæti ef FH og Afturelding vinna sína leiki.
Af hverju vann Vestri?
Þeir skoruðu mark og héldu hreinu, það er bara svo einfalt. Vestraliðið fær ekki á sig mörg mörk og KA skorar ekki mörg á útivelli.
Hverjir stóðu upp úr?
Diego Montiel fær þetta í dag. Gerði vel í markinu og þegar upp er staðið er það sem skiptir máli.
Dómarinn
Ívar Orri var bara flottur í dag. Markmannsþjálfari KA var eitthvað ósáttur við hann og uppskar gult spjald en Ívar og hans teymi gerðu engin mistök í dag og ekkert út á þá að setja.
Stemmning og umgjörð
Flott veður í dag og 315 manns sem mættu á völlinn. Trommað og sungið allan leikinn.
Sáttur með úrslitin í sérstökum leik

„Þetta var sérstakur leikur og mér fannst við vera ofan á í öllu í fyrri hálfleik. Fórum inn í hálfleik og ætluðum að skerpa aðeins á okkur og vera betri á boltanum. Það kom gjörsamlega ekkert út úr því,“ sagði Davíð Smári eftir leik.
Hann sagði einnig að sínir menn hefðu átt betri færi bæði í fyrri og seinni hálfleik. KA menn sóttu á Vestra í seinni og Davíð var sammála því að honum leið ekkert alltof vel og menn væru kannski orðnir full værukærir í því að líða vel að verjast.
„Ég er bara spenntur fyrir því og verður erfiður leikur, sérstaklega komandi úr svona leik,“ sagði Davíð um næsta leik þegar nágrannar KA í Þór koma í heimsókn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn.