„Veturinn eins og best verður á kosið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. mars 2025 11:01 Leikmenn Aftureldingar fagna sigrinum á Keflavík í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar síðasta haust. vísir/anton Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, telur að Afturelding geti spjarað sig vel á sínu fyrsta tímabili í Bestu deild karla.
Aftureldingu er spáð 11. sæti Bestu deildar karla í spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2. Mosfellingar leika í fyrsta sinn í efstu deild í sumar. „Ég er nokkuð bjartsýnn fyrir þeirra hönd. Ég kíkti á þá í vetur og fékk að vera með þeim í einn dag og maður upplifði mikla stemmningu, eðlilega. Þetta er stemmningslið. Það var gaman að fylgjast með þeim á síðasta ári, þegar þeir fóru upp. Draumurinn orðinn að veruleika hjá Magga [Magnúsi Má Einarssyni, þjálfara Aftureldingar]. Hann er búinn að stefna að þessu lengi,“ sagði Baldur. „Eins og veturinn hefur tikkað finnst mér það eins og best verður á kosið. Þeir fengu fjórmenningana; Oliver [Sigurjónsson], Axel [Óskar Andrésson], Jökul [Andrésson] og Þórð [Gunnar Hafþórsson].“ Klippa: 11. sæti Afturelding Baldur hefur trú á því að Mosfellingar verði réttu megin við strikið í mótslok. „Það er allt sem bendir til þess að sumarið verði gott og þá er ég að fara að meina að þeir séu ekki að fara að falla. Ég held að markmiðið geti ekkert verið hærra en það en það er spennandi sumar framundan. En ég hef pínu áhyggjur af gæðunum í hópnum. Það eru of fáir gæðatoppar í liðinu, of fáir með reynslu en ég veit að þeir eru spenntir að afsanna svoleiðis spár,“ sagði Baldur. Afturelding sækir Íslandsmeistara Breiðabliks heim í upphafsleik Bestu deildarinnar laugardaginn 5. apríl.
Besta deild karla Afturelding Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Fleiri fréttir Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Sjá meira