Handbolti

Er í 90 prósent til­fella nóg

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það voru eilítil þyngsli í Ými Erni líkt og öðrum landsliðsmönnum Íslands, eðlilega.
Það voru eilítil þyngsli í Ými Erni líkt og öðrum landsliðsmönnum Íslands, eðlilega. Vísir/Vilhelm

„Manni líður ekkert vel. En eins og staðan er núna þurfum við bara að vinna næsta leik og munum gera það sem við getum til að vinna leikinn,“ segir Ýmir Örn Gíslason á hóteli íslenska landsliðsins í Zagreb degi eftir skell gegn Króötum.

Ísland tapaði með sex marka mun fyrir þeim króatísku í Zagreb í gær og von um 8-liða úrslit nánast úr sögunni. Munaði mest um slappa byrjun á leiknum, vörnin líkt og gatasigti og Króatar gengu á lagið með fulla stúku á bakvið sig.

Klippa: Niðurlútur Ýmir vonar það besta

„Þetta eru einn, tveir fleiri varðir boltar í fyrri hálfleik og kannski í seinni hálfleik að nýta færin betur frammi. Við gerum of marga tæknifeila sóknarlega, þeir helmingi færri, það er svo margt sem helst í hendur. Í gær var þetta ekki að falla með okkur,“

„Við gerðum þeim full auðvelt fyrir, að leyfa þeim að taka tvisvar 4-0 kafla á okkur í fyrri hálfleik og stúkan með. Það er erfitt að snúa því við en ég er samt ánægður hvernig við komum inn í seinni hálfleik, að gefast aldrei upp og berjast alla leið, alveg til enda. En því miður vorum við búnir að grafa það djúpa holu að við komumst ekki upp úr henni,“ segir Ýmir.

Ísland hefur fallið úr leik í milliriðli ítrekað á undanförnum mótum. Af hverju kemst liðið ekki yfir þennan hjalla að fara í 8-liða úrslit?

„Það er góð spurning. Ég veit það ekki. Það er stutt á milli í handboltanum. Ég veit ekki hvað vantar upp á. Það getur verið að öll lið endi með 8 stig og það er í 90 prósent tilfella nóg. Átta stig í milliriðli, til að komast áfram. Við þurfum bara að mæta í þennan leik á morgun, bíða og sjá, vona það besta og vonandi getum við fengið að halda áfram að spila á þessu móti,“ segir Ýmir.

Viðtalið má sjá í spilaranum.

Ísland mætir Argentínu klukkan 14:30 í dag og leiknum lýst beint á Vísi. Leik Slóvena við Króata verður einnig lýst á vefnum í kvöld klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×