Handbolti

Okkar menn fengu ekki slóvenskan sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Seif El-Deraa var markahæstur Egypta gegn Slóvenum.
Seif El-Deraa var markahæstur Egypta gegn Slóvenum. getty/Sanjin Strukic

Egyptaland jafnaði Ísland að stigum í milliriðli 4 á HM í handbolta karla með sigri á Slóveníu, 26-25, í dag.

Þetta voru ekki draumaúrslit fyrir Íslendinga en okkar menn eru samt enn í kjörstöðu og með örlögin í sínum höndum. Vinni Ísland Króatíu í kvöld er liðið komið í átta liða úrslit og sleppur við að mæta Evrópumeisturum Frakklands. Íslendingum dugir einnig að vinna Argentínumenn til að komast þangað, að því gefnu að þeir tapi ekki með fjögurra marka mun eða meira fyrir Króötum.

Þá getur Slóvenía enn rétt Íslandi hjálparhönd með því að taka stig af Króatíu á sunnudaginn.

Eftir jafnar upphafsmínútur náðu Egyptar frumkvæðinu gegn Slóvenum með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 5-5 í 9-5. Tveimur mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 16-14.

Slóvenar voru sjálfum sér verstir í leiknum en þeir gerðu gríðarlega mörg mistök og fóru oft og iðulega illa að ráði sínu í sókninni. Alls tapaði slóvenska liðið boltanum tuttugu sinnum í leiknum.

Abdelrahman Abdou kom Egyptum í 26-22 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Það reyndist síðasta mark egypska liðsins í leiknum. Slóvenar skoruðu næstu þrjú mörk og fengu lokasóknina. En þar var dæmd leiktöf á þá og Egyptar fögnuðu sigri. 

Blaz Janc og Aleks Vlah voru langatkvæðamestir hjá Slóveníu en þeir skoruðu átta og sjö mörk. Seif El-Deraa skoraði sex mörk fyrir Egyptaland og Ahmed Adel og Yahia Omar fimm.

Í milliriðli 3 gerði Brasilía sér lítið fyrir og vann Svíþjóð, 24-27. Eftir tapið er ljóst að Svíar komast ekki í átta liða úrslit en Brassar eru hins vegar komnir þangað, öllum að óvörum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×