Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Argentínu: Við eigum einn besta mark­vörð í heimi

Íþróttadeild Vísis skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson hefur verið besti leikmaður Íslands á HM og einn besti leikmaður mótsins.
Viktor Gísli Hallgrímsson hefur verið besti leikmaður Íslands á HM og einn besti leikmaður mótsins. vísir/vilhelm

Ísland vann níu marka sigur á Argentínu, 30-21, í lokaleik sínum í milliriðli 4 á HM í handbolta. Margir leikmenn íslenska liðsins spiluðu vel í leiknum.

Eftir vonbrigðin gegn Króötum á föstudaginn voru Íslendingar lengi í gang í leiknum í dag. En í stöðunni 9-9 skildu leiðir. Ísland skoraði sex af síðustu sjö mörkum fyrri hálfleik og svo fyrstu fjögur mörkin í þeim seinni og náði níu marka forskoti, 19-10.

Eftir það var aðeins spurning hversu stór sigurinn yrði og á endanum munaði níu mörkum á liðunum, 30-21. Það ræðst á eftir hvort þetta verður síðasti leikur Íslendinga á HM en okkar menn vonast eftir greiða frá annað hvort Grænhöfðeyingum eða Slóvenum til að komast í átta liða úrslit.

Viktor Gísli Hallgrímsson átti enn einn stórleikinn í íslenska markinu og Óðinn Þór Ríkharðsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson svöruðu fyrir slakan leik síðast.

Allir leikmenn íslenska liðsins komu inn á í leiknum og flestir lögðu sitt af mörkum.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Argentínu:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 5 (19 varin skot - 54:24 mín.) Hefur verið frábær á mótinu ef frá er talinn fyrri hálfleikurinn gegn Króatíu. Var sérstaklega mikilvægur í upphafi leiks þegar deyfð var yfir öðrum leikmönnum íslenska liðsins. Varði þrettán skot í fyrri hálfleik (57 prósent!) og endaði með nítján varin skot (49 prósent) og skoraði auk þess eitt mark. Enn og aftur skein stjarna Viktors skært og hann er kominn í hóp allra bestu markvarða heims. Og er enn bara 24 ára.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 4 (4 mörk - 42:32 mín.) Var pottþéttur í leiknum og nýtti öll fjögur skotin sín. Hefur átt frábært mót og búinn að eigna sér stöðu vinstri hornamanns í landsliðinu.

Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 2 (0 mörk - 13:56 mín.) Eftir að hafa spilað vel á mótinu gengu hlutirnir ekki alveg upp hjá Aroni í dag. Byrjaði inn á en náði ekki að láta að sér kveða. Gaf þrjár stoðsendingar en skoraði ekki. Fór af velli eftir um stundarfjórðung og hvíldi það sem eftir var leiks.

Haukur Þrastarson, leikstjórnandi - 2 (0 mörk - 5:34 mín.) Fékk tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það engan veginn. Klikkaði á tveimur skotum, tapaði boltanum einu sinni og sóknarleikurinn var afar stirður meðan Haukur stýrði honum. Verður að gera betur þegar hann fær að spila. Hæfileikarnir eru til staðar en sjálfstraustið skortir.

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 3 (4/1 mörk - 18:40 mín.) Traust frammistaða hjá Viggó. Skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en sat á bekknum allan seinni hálfleikinn. Hefur átt flott mót og verið sérstaklega svalur á vítalínunni.

Teitur Örn Einarsson, hægra horn - 3 (3 mörk - 43:53 mín.) Byrjaði nokkuð óvænt inn á í hægra horninu. Skaut í andlitið á Leonel Maciel, markverði Argentínu, í fyrsta færinu sínu en náði vopnum sínum eftir það. Skilaði þremur mörkum og ágætis frammistöðu.

Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 4 (1 mark - 29:08 mín.) Átti stóran þátt í að vörn Íslands var jafn þétt og hún hefur verið nær allt mótið. Tengdi vel við Elvar og svo Einar Þorstein og komst vel frá sínu.

Elvar Örn Jónsson, varnarmaður - 3 (0 mörk - 32:27 mín.) Sterkur í vörninni að vanda. Hefur átt prýðis gott mót.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - (0 varin skot - 00:14 mín.) Kom nýrakaður inn á til að reyna að verja eitt vítakast.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 5 (7/1 mörk - 42:26 mín.) Hefur ekki átt gott mót og sneri boltann framhjá úr fyrsta færinu sínu. En vann heldur betur á eftir það. Óðinn skoraði úr næstu sjö skotunum sínum og var markahæstur í íslenska liðinu. Það er svo gaman að horfa á Óðin þegar hann er í stuði og hlutirnir ganga upp hjá honum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 5 (4 mörk - 20:43 mín.) Átti erfitt uppdráttar í síðasta leik en það var hugur í Gísla í dag. Sóknarleikurinn lagaðist umtalsvert eftir að hann kom inn á. Skoraði fjögur mörk, þar af eitt með laglegu langskoti, gaf sex stoðsendingar og fiskaði tvö víti. Flottur leikur hjá Gísla.

Janus Daði Smárason, leikstjórnandi - 4 (3 mörk - 24:27 mín.) Var kraftmikill og áræðinn, skoraði þrjú góð mörk, gaf þrjár stoðsendingar og stóð vörnina vel.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (2 mörk - 28:43 mín.) Fínn í vörninni en tapaði boltanum þrisvar sinnum í sókninni. Hefði þurft að smyrja puttana með tonnataki fyrir leikinn. 

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 4 (1 mark - 21:27 mín.) Átti flotta innkomu í miðja íslensku vörnina. Virkur og í góðum takti. Skoraði líka eitt mark.

Stiven Tobar Valencia, vinstri hornamaður - 3 (0 mörk - 14:36 mín.) Spilaði síðasta stundarfjórðunginn. Fékk engin færi en var flottur í vörninni.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - 1 (0 mörk - 14:15 mín.) Áts. Agaleg innkoma hjá Þorsteini. Klikkaði á öllum þremur skotunum sínum og tapaði boltanum fjórum sinnum. Rosalega vondar mínútur hjá Þorsteini. 

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari - 4 Það hefur eflaust ekki verið einfalt verk að koma íslenska liðinu aftur á fætur eftir föstudaginn. Og byrjunin var dauf. Enda var Snorri afar ósáttur og notaði útiröddina í leikhléi sem hann tók um miðjan fyrri hálfleik. Eftir það gengu hlutirnir nokkuð smurt fyrir sig, Snorri nýtti hópinn vel og sigurinn var á endanum mjög öruggur. Nú er bara að bíða og vonast eftir slóvenskum greiða. Það yrði auðvitað blóðugt að missa af sæti í átta liða úrslitum þrátt fyrir að fá átta stig í milliriðli. 

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur

Tengdar fréttir

Umfjöllun: Ísland - Argentína 30-21 | Strákarnir okkar lifa í voninni

Strákarnir okkar gerðu sitt í dag með því að vinna Argentínu í lokaleik sínum í milliriðlakeppni HM í handbolta. Nú þurfa þeir að treysta á hjálp frá Grænhöfðaeyjum eða Slóveníu til að komast áfram í 8-liða úrslit, en það er ljóst að þeir enda í versta falli í 9. sæti mótsins.

Snorri ekki viss um að hann horfi í kvöld

„Einhvers staðar hef ég smá trú, en hafandi spilað við Króatana á þeirra heimavelli þá held ég að líkurnar séu ekki okkur í hag,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari, nú þegar biðin er hafin eftir því að vita hver örlög Íslands verða á HM í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×