Handbolti

„Þú þarft að vera dá­lítið leiðin­legur“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ýmir Örn Gíslason var frábær í íslensku vörninni í gær og fagnar hér einu af mörgum stoppum íslenska liðsins í leiknum.
Ýmir Örn Gíslason var frábær í íslensku vörninni í gær og fagnar hér einu af mörgum stoppum íslenska liðsins í leiknum. Vísir/Vilhelm

Íslendingar elska hona svokölluðu íslensku geðveiki hjá landsliðunum okkar en það þýðir líka að strákarnir okkar eru ekki að stefna á nein vinsældarverðlaun. Þeir bíta frá sér og láta vel finna fyrir sér í vörninni.

Íslenska geðveikin var mætt á svæðið í frábærum sigri á Slóvenum á HM í handbolta í gærkvöldi.

Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu til Stefáns Árna Pálssonar í Besta sætið og fóru yfir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu á HM í handbolta. Varnarleikur íslenska liðsins fékk auðvitað mikla athygli enda frábær í leiknum.

Íslensku strákarnir voru gríðarlega grimmir í vörninni og létu Slóvena aldrei vaða yfir sig.

„Orkustigið er ofboðslega hátt og menn voru bara fastir fyrir í leiknum. Það var bara hundur í mönnum sem skipti gríðarlega miklu máli fyrir okkur,“ sagði Einar Jónsson í Besta sætinu.

„Ég er ánægður með það. Þetta hafa verið einkennismerki okkar landsliða í gegnum árin. Mér finnst það stundum hafa týnst svolítið undanfarið. Það er greinilegt að Snorri er að leggja mikla áherslu á þetta,“ sagði Einar.

„Það tókst heldur betur vel í dag [gær] því auðvitað eiga menn að vera dálítið, svona eins og hann [Snorri] segir. Þú þarft að vera dálítið leiðinlegur,“ sagði Einar.

„Ásgeir þú hefur spilað á mörgum svona mótum. Er ekki partur af því að ná langt í íþróttum að vera smá fífl,“ spurði Stefán Árni Pálsson.

„Bara hundrað prósent. Það er nauðsynlegt. Þú þarft ekkert að vera algjör hálfviti en þú getur verið mjög fastur fyrir. Svo horfir þú bara í hina áttina eða segir honum að grjóthalda kjafti í andlitið á honum. Hvernig sem þú gerir það skiptir ekki öllu máli ,“ sagði Ásgeir.

„Bara að það sé alvöru ‚physical presence'. Það munar geðveikt miklu. Þess vegna var línumaðurinn þeirra orðinn svona pirraður. það var verið að djöflast í honum allan helvítið leikinn. Hann er pottþétt ekkert vanur því,“ sagði Ásgeir.

Það má hlusta á allt spjallið þeirra um leikinn hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×