Handbolti

Orðinn þreyttur á lé­legum liðum á HM: „Þetta er al­gjört bíó“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kúbverjar áttu ekki roð í Íslendinga í gær. Þeir hafa tapað báðum leikjum sínum á HM með samtals 43 marka mun.
Kúbverjar áttu ekki roð í Íslendinga í gær. Þeir hafa tapað báðum leikjum sínum á HM með samtals 43 marka mun. vísir/vilhelm

Alltof mörg slök lið eru á heimsmeistaramótinu í handbolta að mati Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Rúnars Kárasonar.

Ísland vann Kúbu með 21 marks mun í gær, 40-19. Þetta er langt frá því fyrsti stórsigurinn á HM en margir leikjanna á mótinu hafa verið afar ójafnir. Til að mynda unnu heimsmeistarar Danmerkur alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni með samtals 55 marka mun.

„Þetta er algjört bíó. Þetta er eiginlega ekki hægt. Það er einn og einn alvöru leikur. Mér finnst þetta lélegt og leiðinleg byrjun á móti,“ sagði Ásgeir Örn í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Vísis.

„Við erum eitthvað að gagnrýna liðin fyrir að vinna bara með fimmtán marka mun. Mér finnst þetta leiðinlegt. Ég væri til í að minnka þetta aftur.“

Ásgeir Örn benti ennfremur á að slöku liðin væru ekkert að verða betri, þrátt fyrir að komast oftar á HM.

„Auðvitað er þetta einhvers konar langtíma plan, að til lengri tíma búum við til fleiri lið sem spila meira. En á meðan á því stendur er þetta hryllingur,“ sagði Ásgeir Örn.

Ísland vann fyrstu tvo leiki sína á HM með samtals 34 marka mun, líkt og Slóvenía, andstæðingur morgundagsins.

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan sem og hér fyrir neðan. Nálgast má þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

Myndasyrpa: Hart barist á æfingu í Zagreb

Strákarnir okkar tóku vel á því á æfingu í íþróttahöll liðsins Tresnjevska hér í borg. Þeir búa sig undir fyrstu alvöru prófraun mótsins. Slóvenar bíða á morgun.

Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb

Ísland er komið þægilega inn í milliriðla HM í handbolta eftir stórsigur, 40-19, á arfaslöku liði Kúbverja. Nú er þessum bullleikjum lokið og alvaran bíður handan við hornið.

Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús

Danir eru á fleygiferð á heimsmeistaramótinu í handbolta en landslið þeirra vann B-riðil með miklum yfirburðum og Ítalíu í kvöld með 19 mörkum, 39-20.

Tölfræðin á móti Kúbu: Aron kveikti á seinni bylgjunni

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann 21 marks sigur á Kúbu, 41-19, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta. Þetta var fagmannleg afgreiðsla hjá strákunum okkar og eftir tvo fyrstu leikina er íslenska liðið búið að stimpla marga menn inn í mótið.

„Ég eiginlega barði þetta í gegn“

„Ég er ógeðslega glaður og ánægður með að byrja og fá að koma inn í þetta núna. Maður sá það kannski ekki alveg fyrir tveimur vikum. Ég er ánægður með hvernig við fórum að þessu í dag,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði, sem er mættur til leiks á HM í handbolta.

„Ætluðum bara að vinna eins stórt og við gátum“

„Þeir voru klárlega slakari aðilinn í dag en þetta var skemmtilegur leikur. Það gekk flest allt upp sem við vorum að gera,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson eftir flotta frammistöðu sína og Íslands í stórsigrinum gegn Kúbu á HM í handbolta í kvöld.

„Ekki minn stíll að vera í felu­leik með Aron“

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, var mættur í viðtal hjá Vali Páli Eiríkssyni strax eftir öruggan sigur Íslands á Kúbu í kvöld en strákarnir okkar fóru með sannfærand 21 marks sigur af hólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×