Fótbolti

„Eina leiðin fyrir mig til að lifa af í þessu eitraða um­hverfi“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Carly Nelson í búningi Utah Royals. Þarna var mikið að gerast á bak við tjöldin sem hafði stór áhrif á hennar andlegu heilsu.
Carly Nelson í búningi Utah Royals. Þarna var mikið að gerast á bak við tjöldin sem hafði stór áhrif á hennar andlegu heilsu. @carly_nelson

Bandaríska knattspyrnukonan Carly Nelson hefur gert upp tíma sinn hjá Utah Royals með sláandi yfirlýsingu.

Nelson kom til Utah Royals í leikmannaskiptum frá Orlando Pride. Hún er frá Utah, er mormóni, fyrir löngu komin út úr skápnum og spilaði með Utah Utes í háskóla.

Upplifun hennar hjá Utah Royals var hins vegar hræðileg.

„Eftir að hafa tekið mér góðan tíma í að gera upp tíma minn hjá Utah Royals þá get ég ekki þagað lengur um þá andlegu og sálfræðilegu misnotkun sem ég varð fyrir hjá félaginu,“ skrifaði Carly Nelson á samfélagsmiðla sína.

„Þrátt fyrir að ég hafi vakið athygli á þessu innanhúss og sótt mér aðstoðar vegna andlegrar heilsu minnar þá mætti ég mikilli mótstöðu og opinberri andstöðu frá þeim þjálfurum sem báru ábyrgðina,“ skrifaði Nelson.

„Það var ekkert val fyrir mig að taka mér þetta leyfi í maí til að vinna í minni andlegri heilsu. Það var eina leiðin fyrir mig til að lifa af í þessu eitraða umhverfi,“ skrifaði Nelson.

„Þessi reynsla sýndi fram á grimman veruleika. Þessi kúltúr félagsins er búinn til af ráðamönnum þess sjálfs. Þegar þeir setja völd ofar fólki þá dafnar misnotkunin á bak við tjöldin,“ skrifaði Nelson.

Hún tók það jafnframt fram að þetta væri aðeins lítill hluti af því sem gekk á en að hún muni segja alla söguna seinna. Hún sagði jafnframt að fólk á ekki að þurfa að velja á milli ferilsins og andlegrar heilsu sinnar.

„Það er kominn tími til þess að sökudólgarnir beri ábyrgð á gerðum sínum og byggja upp kúltúr sem setur í forgang virðingu, öryggi og stuðning,“ skrifaði Nelson.

„Með því að segja frá þessu þá vonast ég til að vekja athygli á þessum vandamáli og kalla á breytingar. Með því gæti íþróttafólk framtíðarinnar sloppið við þær áskoranir sem ég þurfti að glíma við,“ skrifaði Nelson.

„Enginn á þurfa að þola þetta einn,“ skrifaði Nelson en það má lesa allan pistil hennar hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×