Selfyssingurinn Teitur Örn leikur undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach í Þýskalandi eftir að hafa fært sig um set í sumar. Meiðsli plöguðu hann í haust en hann hefur unnið sig inn í hlutina síðustu vikur.
„Ég meiðist þarna leiðinlega og var frá í tvo mánuði. En eins og staðan er akkúrat í dag er ég bara í toppformi og ferskur. Mér líst bara vel á þetta,“ segir Teitur sem kveðst líða vel hjá Gummersbach en hjá liðinu er einnig Elliði Snær Vignisson úr íslenska landsliðshópnum.
„Mér líður mjög vel. Það er mjög gott að vera í þessu liði. Allir strákarni eru duglegir og klárir og Gaui sparkar í rassgatið á okkur líka. Það er mjög gott að vera þarna,“ segir Teitur.
Stórt skarð sem þarf að fylla
Líkt og greint hefur verið frá meiddist sveitungur Teits, Ómar Ingi illa í síðasta mánuði og ljóst að hann tekur ekki þátt á HM sem hefst í næstu viku. Teitur fær því stærra hlutverk í hægri skyttu stöðunni og er hann staðráðinn í því að nýta tækifærið.
„Þetta er hörð samkeppni í þessari stöðu en ég geri bara minn hlut. Ég veit að þegar ég kem inn í liðið þarft ég bara að spila á mínum styrkleikum og koma með það sem ég er góður í, inn í liðið,“
„Ómar skilur eftir stórt skarð sem þarf að fylla. Það er bara undir mér og Viggó komið að fylla þetta skarð. Við þurfum að vera upp á okkar allra besta til að ná að fylla upp í gatið. Við erum klárir í þetta og munum gera okkar allra besta,“ segir Teitur.
Viðtalið við Teit í heild sinni má sjá að ofan.