Veður

Yfir­leitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Það mun lægja seint í dag.
Það mun lægja seint í dag. Vísir/Vilhelm

Lægð yfir Skandinavíu og hæðarhryggur á Grænlandssundi beina nú norðlægri átt til landsins, yfirleitt fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag. Hvassast verður austantil.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði él um landið norðaustanvert, en yfirleitt þurrt og bjart veður á Suður- og Vesturlandi.

„Frost 3 til 17 stig, kaldast inn til landsins. Lægir seint í dag og styttir upp fyrir austan.

Á morgun verður hæðarhryggurinn yfir landinu. Vindur verður því fremur hægur og víða kalt og bjart veður, en þó mun eitthvað blása norðantil á landinu. Seinnipartinn þykknar upp vestanlands með stöku éljum og þar dregur úr frosti.

Á föstudag er svo útlit fyrir suðlæga átt með éljum eða slydduéljum sunnan- og vestanlands. Hlýnar smám saman,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Sunnan 8-13 m/s norðantil, annars hægari vindur. Víða bjart, en þykknar upp vestanlands með stöku éljum. Frost 0 til 15 stig, minnst vestast á landinu.

Á föstudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 5-13 og dálítil él, en þurrt á Austurlandi. Frost 1 til 10 stig, en hiti kringum frostmark við suður- og vesturströndina.

Á laugardag: Sunnan 8-15 og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig síðdegis.

Á sunnudag: Ákveðin suðaustanátt snemma um morguninn og rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst síðan í hægari sunnan- og suðvestanátt og dregur úr vætu. Hiti 2 til 9 stig.

Á mánudag: Suðlæg átt og rigning eða skúrir. Milt í veðri.

Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir eða slydduél, en bætir í úrkomu síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×