Arnór frá Gumma til Arnórs Sindri Sverrisson skrifar 20. desember 2024 15:02 Arnór Viðarsson er farinn frá Fredericia, að láni, og vonast eftir stærra hlutverki hjá Bergischer. FHK Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson hefur ekki fengið að spila eins mikið og hann vildi í Danmörku á sinni fyrstu leiktíð í atvinnumennsku, og flytur nú til Þýskalands en mun áfram leika undir stjórn Íslendings.
Arnór fór í sumar frá ÍBV til danska liðsins Fredericia, sem leikur undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara. Þessi 22 ára leikmaður, sem er bróðir landsliðsmannsins Elliða Snæs, hefur samkvæmt tilkynningu á vef Fredericia komið við sögu í 18 leikjum hjá liðinu en skorað samtals 16 mörk og átt 3 stoðsendingar. Nú hefur hann verið lánaður til þýska 2. deildarfélagsins Bergischer og mun þar leika undir stjórn Arnórs Þórs Gunnarssonar. Íslenskur þjálfari og liðsfélagi Arnór og Markus Pütz tóku við sem aðalþjálfarar Bergischer seint á síðustu leiktíð, og tókst ekki að bjarga liðinu frá falli úr efstu deild. Arnór hafði áður verið leikmaður liðsins um árabil og svo í þjálfarateyminu eftir að hann lagði skóna á hilluna. Hjá Bergischer hittir Arnór Viðarsson einnig fyrir Tjörva Tý Gíslason sem kom til félagsins frá Evrópubikarmeisturum Vals í sumar. Bergischer er á toppi 2. deildarinnar með 24 stig eftir 15 umferðir, þremur stigum á undan næsta liði. Bergischer á eftir leik á sunnudag og á annan í jólum áður en við tekur hlé fram til 9. febrúar.
Danski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira