Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sindri Sverrisson skrifar 23. nóvember 2024 16:19 Óli Valur Ómarsson er kominn í grænt og spilar með Breiðabliki á næstu leiktíð. Breiðablik Íslandsmeistarar Breiðabliks kynntu í dag Óla Val Ómarsson sem nýjasta leikmann liðsins en hann kemur til félagsins frá Sirius í Svíþjóð, eftir að hafa spilað með Stjörnunni í sumar. Samningur hans við Breiðablik gildir til ársins 2028.
Óli Valur er uppalinn hjá Álftanesi og Stjörnunni og á að baki 59 leiki í efstu deild fyrir Stjörnuna, og hefur skorað í þeim sex mörk. Þessi 21 árs gamli leikmaður skoraði fimm mörk fyrir Stjörnuna í sumar sem lánsmaður frá Sirius en hann fór upphaflega til sænska félagsins á miðju sumri 2022. Stjarnan sóttist einnig eftir því að fá Óla Val núna, eftir að ljóst var að hann hefði hug á að snúa aftur heim til Íslands. Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Stjörnunni, sagði í viðtali við Fótbolta.net á fimmtudag að félagið hefði fengið samþykkt tilboð í Óla Val, ásamt fleiri félögum. Stjörnumenn hefðu svo farið í samningaviðræður við leikmanninn og nýjan umboðsmann hans en Óli á endanum valið Breiðablik, og fullyrti Helgi að Óli hefði ákveðið að fara til Íslandsmeistaranna vegna þess að þeir hefðu boðið fjárhagslega besta tilboðið. „Óli er, þegar allt er talið, dýrasti leikmaður sem íslenskt félag kaupir, þori ég að fullyrða og verðið hærra en erlend félög voru tilbúin að greiða,“ sagði Helgi Hrannarr og viðurkenndi að það væru vonbrigði að Óli hefði valið Breiðablik fram yfir Stjörnuna. Óli Valur, sem er 21 árs gamall, á að baki 28 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim tvö mörk.
Besta deild karla Breiðablik Stjarnan Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira