Handbolti

Hrósar Þor­steini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með innkomu Þorsteins Leós.
Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með innkomu Þorsteins Leós. Vísir/Anton Brink

„Leikur tveggja hálfleika, kannski aðallega sóknarlega,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sex marka sigur liðsins gegn Bosníu í kvöld.

„Varnarlega erum við bara fínir fannst mér allan leikinn. Við fáum bara á okkur tólf mörk í fyrri hálfleik og mörkin sem við fáum á okkur er eitthvað sem mér fannst við geta komið í veg fyrir. Svo var annað sem við ætluðum að bjóða upp á eins og gengur og gerist. Hornamennirnir þeirra nýttu færin sín bara vel, en við fengum það sem við vildum og áttum von á.“

„Þetta var svolítið stirt sóknarlega og við vorum lengi að finna taktinn. Svo auðvitað heggur Steini [Þorsteinn Leó Gunnarsson] á ákveðinn hnút og kemur með þessi auðveldu mörk sem við þurftum á að halda. Ómar og Janus gera frábærlega að spila hann uppi, en mér fannst að þegar Steini fór að setja þessi mörk þá losnaði um alla aðra sóknarlega og við gengum á lagið.“

„Það var þannig séð margt sem ég var ánægður með, sérstaklega í seinni hálfleik. Varðandi varnarleikinn heilt yfir fannst mér við vera í fínum málum.“

Snorri hafði þó ekki lokið sér af í að hrósa Þorsteini Leó, sem kom inn með aðra vídd en íslenska liðið hefur getað boðið upp á undanfarin ár. Þorsteinn er nefnilega þeim hæfileika gæddur að vera ofboðslega hávaxinn og geta skotið af löngu færi.

„Hann er búinn að vera meiddur í síðustu tveimur verkefnum, en æfði með okkur í janúar. Við erum búnir að vera aðeins að bíða eftir honum. Maður er búinn að fylgjast með honum í Porto og hann hefur gert hlutina vel þar. Hann er bara vopn sem við höfum ekkert endilega haft og gefur okkur klárlega mikla vídd sem við þurfum að nýta.“

„Að því sögðu þá er þetta bara einn leikur og ef þú ert góður þá geriru þetta 2-3 í röð, en ef þú ert í heimsklassa þá ertu oftast góður. Við verðum að stíga varlega til jarðar því hann er ungur og á nóg eftir. En virkilega ánægjulegt að fá hann inn og gaman að hann skildi negla þetta svona,“ bætti Snorri við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×