Fótbolti

Inter á­fram eftir þrjú mörk á ellefu mínútum í fram­lengingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cecilía Rán Rúnarsdóttir kom til Inter á láni frá Bayern München í sumar. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir kom til Inter á láni frá Bayern München í sumar. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. getty/Image Photo Agency

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og stöllur hennar í Inter eru komnar áfram í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir 2-5 sigur á Parma eftir framlengingu í dag.

Cecilía stóð á milli stanganna hjá Inter sem komst yfir á 31. mínútu með marki Haley Bugeja. Parma náði forystunni með tveimur mörkum með tveggja mínútna millibili en Michela Cambiaghi jafnaði fyrir Inter á 79. mínútu.

Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Þar skoraði Inter þrjú mörk á ellefu mínútum og tryggði sér sigurinn. 

Ghoutia Karchouni, Lina Magull og Cambiaghi gerðu mörk þeirra bláu og svörtu í framlengingunni. Lokatölur 2-5, Inter í vil. Liðið mætir Sassuolo í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.

Fiorentina, lið Alexöndru Jóhannsdóttur, komst einnig áfram í átta liða úrslit með 0-1 sigri á Arezzo á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×