Ragga er hnyttin og kómísk í skrifum sínum á samfélagsmiðlum um heilsu og lífstíl. Í nýjasta pistli hennar á Facebook fjallar hún um streituástand fólks í samfélaginu og áhrifum þess á líkamann og andlega líðan.
„Finnst þér þú alltaf vera að drífa þig? Eins og útspýtt hundsskinn á morgnana að hundskast úr húsi. Setur á þig maskara á rauðu ljósi. Grýtir í þig jógúrti um leið og þú svarar tölvupóstum. Í vinnunni að tætast úr einu verkefni í annað án þess að anda á milli. Rassakastast í búðinni eftir vinnu með innkaupakörfuna eins og í Formúlubraut að rífa úr hillunum að drífa þig heim. Skera. Steikja. Græja. Gera. Elda. Þrífa. Þvo,“ skrifar Ragga við færsluna:
„Skrolla símann yfir imbanum á kvöldin til að ná öllu sem þú misstir af á samfélagsmiðlunum. Dúndrast í bælið en hausinn eins og íkorni á amfetamíni að endurspila móment, samtöl, og minna þig á allt sem þú átt eftir að gera. Streitukerfið í bullandi yfirvinnutaxta við að seyta út streituhormónunum kortisóli og adrenalín allan daginn.“
Mikilvægi sefkerfisins
Ragga segir krónísk streita valda ójafnvægi í HPA ásnum, sem er samspil heiladinguls, undirstúku í heila og nýrnahettna, sem skilar ójafnvægi út í hormónakerfi líkamans.
„Í staðinn fyrir að vera sultuslök er alltaf smá glóð í streitunni og þegar við leggjumst á koddann er kerfið eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi,“ skrifar Ragga á kómínskan og myndrænan máta.
Ragga undirstrikar mikilvægi þess að hægja á okkur til að virkja sefkerfið oftar yfir daginn. Það stuðlar að minni streitu og eðlilegri dægursveiflum í kortisóli og adrenalíni.
„Hann vill ekki vera alltaf uppi í rjáfri með streituna í botni. Við þurfum að kúpla inn augnablikum af rólegri stundum. Vera í meiri núvitund krefst þess að við gerum hlutina aðeins hægar.“
Hér eru nokkur ráð til að ná slökun í kerfið yfir daginn:
- Kúplum inn fleiri stundum af sjálfsrækt
- Skilja eftir göt í dagatalinu fyrir EKKERT
- Setja inn rólegar stundir milli verkefna.
- Borða hægar og gefa sér tíma í að njóta máltíða.
- Hætta að múltítaska og mónótaska oftar.
- Muna eftir öndunaræfingum og fókusa á rólega útöndun.
Það eru ekki veitt verðlaun fyrir sturlað vinnuálag á dánarbeðinu.