Tvískipt veður á landinu Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2024 07:13 Það hvessir úr suðri í kvöld og í nótt. Vísir/Vilhelm Lægð sem stödd er norðaustur af landinu veldur allhvassri eða hvassri norðvestanátt á norðaustan- og austanverðu landinu í dag og mun þar snjóa með vindinum. Akstursskilyrði geta því verið erfið á þessum slóðum, sérstaklega á fjallvegum og er ferðalöngum bent á að kanna aðstæður hjá Vegagerðinni áður en lagt er af stað.
Frá þessu segir á heimasíðu Veðurstofunnar þar sem fram kemur að síðdegis fjarlægist lægðin meira og þá lægi og létti til í umræddum landshlutum. Veðrið á landinu í dag er tvískipt, á Suður- og Vesturlandi er hægur vindur og gert er ráð fyrir bjartviðri og því hinn fallegasti dagur í vændum. „Í kvöld og nótt nálgast næsta lægð úr suðri. Á morgun er gert ráð fyrir austlægri átt, en vindur nær sér ekki á strik. Það má búast við úrkomu, sem ágerist eftir því sem líður á daginn og undir kvöld verður líklega rigning víða um land með hita á bilinu 2 til 8 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austlæg átt 5-13 m/s. Dálítil væta á sunnanverðu landinu, en þurrt að kalla norðantil. Rigning víða um land seinnipartinn og hiti 2 til 7 stig. Á fimmtudag: Norðvestan og vestan 10-18, hvassast við norðurströndina. Snjókoma eða slydda norðan- og vestanlands og hiti kringum frostmark. Þurrt að mestu á Suðausturlandi og Austfjörðum með hita að 7 stigum. Lægir um kvöldið, styttir upp og frystir. Á föstudag: Sunnan 13-20 og rigning, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 8 stig. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Vestlæg átt og skúrir eða él, en þurrt á austanverðu landinu. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Á sunnudag: Norðlæg átt með éljum á norðanverðu landinu, en bjartviðri sunnantil. Víða vægt frost. Á mánudag: Breytileg átt og snókoma eða slydda með köflum, en rigning við suðurströndina. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira