Juventus fékk loksins á sig mark Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. október 2024 12:32 Dusan Vlahovic hefur skorað sjö mörk í öllum keppnum á tímabilinu. getty/Image Photo Agency Eftir að hafa haldið hreinu í fyrstu sex leikjum sínum í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu fékk Juventus loks á sig mark þegar Cagliari kom í heimsókn í dag. Lokatölur 1-1.
Varnarleikur Juventus hefur verið ógnarsterkur á tímabilinu og það stefndi allt í að Juve héldi hreinu sjöunda leikinn í röð en undir lokin fékk Cagliari vítaspyrnu. Razvan Marin fór á punktinn, skoraði framhjá Michele Di Gregorio og tryggði gestunum frá Sardiníu jafntefli. Skömmu eftir markið fékk Francesco Conceicao, leikmaður heimamanna, sitt annað gula spjald og þar með rautt. Juventus náði forystunni á 15. mínútu þegar Dusan Vlahovic skoraði úr víti. Hann fagnaði með því að halda treyju með nafni Bremers á lofti en brasilíski varnarmaðurinn sleit krossband í 2-3 sigrinum á RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Vlahovic hefur skorað fimm af tíu mörkum Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en enginn annar leikmaður liðsins hefur skorað meira en eitt mark. Juventus er í 3. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með þrettán stig, þremur stigum á eftir toppliði Napoli. Cagliari er í 15. sætinu með sex stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira