Allhvass vindur og mikil úrkoma vestantil Atli Ísleifsson skrifar 30. ágúst 2024 07:09 Gular viðvaranir tóku gildi vegna úrhellisins á vestanverðu landinu í morgun og verða í gildi fram á laugardagskvöld. Vísir/Vilhelm Lægðir á Grænlandshafi í samvinnu við hæð við Bretland munu beina hlýju og mjög röku lofti úr suðri til landsins á næstunni.
Í vef Veðurstofunnar segir að í dag sé spáð sunnan stinningskalda eða allhvössum vindi með súld eða rigningu og verði úrkoman talsverð á Snæfellsnesi, Breiðafirði og Vestfjörðum. Gular viðvaranir tóku gildi vegna úrhellisins á vestanverðu landinu í morgun og verða í gildi fram á laugardagskvöld. Búast má við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á fráveitukerfi og er fólk hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Fram kemur að vætan nái hins vegar ekki yfir á Austurland. Þar verði hægari vindur og hiti getur náð að tuttugu stigum þegar best lætur. „Á morgun er áfram stíf sunnanátt í kortunum. Áframhaldandi vætutíð vestanlands og bætir einnig verulega í rigningu á sunnanverðu landinu. Þurrir kaflar norðaustantil þar sem hiti getur náð í 20 stig í hnjúkaþey,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 18 í dag. Spáð er úrhelli vestantil en hlýju fyrir austan.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðaustan 10-18 m/s og víða talsverð rigning, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Á sunnudag: Suðaustan 8-15 og rigning, en þurrt og bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðlæg átt 3-10 með vætu sunnan- og vestanlands, en bjartviðri á Norðausturlandi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á þriðjudag: Vestan og norðvestanátt. Víða þurrt veður og bjart með köflum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á miðvikudag og fimmtudag: Suðlæg átt með vætu af og til, en þurrt að mestu og hlýtt norðaustan- og austanlands.
Veður Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Fleiri fréttir Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Sjá meira